Undir áhrifum fjölda lyfja

Lögreglan í Borgarnesi stöðvaði för tveggja ökumanna í dag sem óku undir áhrifum fíkniefna. Í nótt var stúlka á þrítugsaldri stöðvuð og var hún undir áhrifum flestra fíkniefna sem nöfnum tjáir að nefna.

Mældust kannabis- og amfetamínefni í blóði hennar auk kókaíns og ópíums en hið síðarnefnda skýrist líklega af notkun sterkra verkjalyfja.

Nú í hádeginu var svo maður á þrítugsaldri stöðvaður sem ók bæði ölvaður og undir áhrifum fíkniefna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert