Formaður Framsýnar fagnar ummælum forsætisráðherra

Aðalsteinn Baldursson, formaður Framsýnar.
Aðalsteinn Baldursson, formaður Framsýnar. mbl.is

Aðalsteinn Á. Baldursson, formaður Framsýnar, fagnar yfirlýsingum forsætisráðherra í morgun þess efnis að ekki séu uppi áform um að leggja  matarskatt á almenning.

Aðalsteinn segist hafa heimildir fyrir því að ríkisstjórnin hafi haft það til skoðunar.

Kemur þetta fram á heimasíðu Framsýnar stéttarfélags.

Með ummælum forsætisráðherra í morgun eru áðurnefnd áform slegin út af borðinu. Kemur jafnframt fram á heimasíðu Framsýnar að þverpólitísk samstaða hafi verið um að stuðla ekki að hækkunum á matvælum með frekari álögum.

Aðalsteinn segir skattbyrði á launþega nú þegar vera fyrir ofan öll þolmörk, einkum hjá barnmörgum fjölskyldum og tekjulágu fólki. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert