Fréttaskýring: Þýðingarmikið mál fyrir fatlað fólk

Alexander krefst þess að Mosfellsbær niðurgreiði leigubílaferðir fyrir hann til og frá vinnu. Núverandi staða ... stækka

Alexander krefst þess að Mosfellsbær niðurgreiði leigubílaferðir fyrir hann til og frá vinnu. Núverandi staða sé íþyngjandi. mbl.is/Ómar

Morgunblaðið Hjalti Geir Erlendsson hjaltigeir@mbl.is
Nú liggur fyrir héraðsdómi Reykjavíkur fyrsta málið þar sem kröfur eru byggðar á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Alexander Hrafnkelsson er blindur einstaklingur sem sakar Mosfellsbæ um að vanrækja lögboðnar skyldur sínar með því að veita honum ekki fullnægjandi ferðaþjónustu. Hann hefur stefnt bænum og fer fram á sambærilega ferðaþjónustu og Reykjavíkurborg og fleiri sveitarfélög veita fötluðu fólki í hans stöðu. Málið sætir flýtimeðferð hjá héraðsdómi.

Klukkutíma á leið til vinnu

Alexander þarf að panta þjónustubíl með sólarhrings fyrirvara. Bíllinn fer rúnt um bæinn og sækir fleiri sem þurfa á akstursþjónustu að halda. Því tekur það Alexander um klukkutíma að komast til vinnu sem annars tæki nokkrar mínútur. Engar ferðir eru í boði fyrir blinda eða aðra hópa fatlaðra sem ekki þurfa sérútbúna bíla né þá sem þurfa að komast leiðar sinnar með skömmum fyrirvara. Í Reykjavík fær einstaklingur í stöðu Alexanders far með leigubíl til og frá vinnu en borgin tryggir mánaðarlega 60 leigubílaferðir á strætisvagnafargjaldi á hvern einstakling.

„Reykjavíkurborg er alveg til fyrirmyndar hvað þetta varðar og niðurstaðan þar er sú að leigubílaþjónustan er ódýrari,“ segir Páll Rúnar M. Kristinsson, lögmaður Alexanders. Hann heldur því fram að Mosfellsbæ beri skylda til að veita fötluðu fólki tiltekna þjónustu svo það geti stundað nám, vinnu og tómstundir til jafns við ófatlaða. Þjónustan eigi þar með að vega upp þá skerðingu sem hinn fatlaði búi við. „Það eina sem ég vil gera er að sækja vinnu mína en það gerir mér kleift að greiða skatta til ríkisins og útsvar til bæjarfélagsins. Það virðist hins vegar henta Mosfellsbæ betur að hafa mig heima,“ segir Alexander. Mál Alexanders gegn Mosfellsbæ er ekki síður þýðingarmikið fyrir þær sakir að hann, ásamt lögmanni sínum, byggir kröfurnar m.a. á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. En það er í fyrsta skipti sem aðalkrafa í íslensku dómsmáli er byggð á samningnum. Samningurinn hefur verið undirritaður af Íslands hálfu en er þó ekki lögfestur hér á landi. Hins vegar má finna lögbundið túlkunarákvæði í lögum um málefni fatlaðs fólks sem var bætt inn í lögin í fyrra. Þar segir að við framkvæmd laganna skuli meðal annars taka mið af samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Í samningnum kemur fram að fatlað fólk eigi að geta farið allra sinna ferða með þeim hætti sem, og þegar, því hentar gegn viðráðanlegu gjaldi. Páll Rúnar segir að þetta sjónarmið ætti með réttu að hafa mikla þýðingu í málinu.

„Okkur vantar skýrt dómafordæmi um hvaða þýðingu samningur Sameinuðu þjóðanna hefur á Íslandi,“ segir Páll Rúnar. Hann bendir á að litið hafi verið til annarra ólögfestra alþjóðasamninga með samræmisskýringu. Þannig hafi íslensk lög verið túlkuð með tilliti til alþjóðasamninga. Skýr dæmi um það sé til dæmis notkun Mannréttindasáttmála Evrópu áður en hann var lögfestur.

„Ef dómstóllinn ákveður að líta til sáttmálans mun það hafa veruleg áhrif fyrir stóra hópa fatlaðs fólks. Það mun einnig breyta miklu fyrir langveik og fötluð börn,“ segir Páll Rúnar.

Hafnaði niðurgreiðslu

Sambærilegt mál er nú til skoðunar hjá embætti umboðsmanns Alþingis. Það mál snýst um akstursþjónustu fyrir blindan einstakling hjá Kópavogsbæ. Oddur Stefánsson er 17 ára nemandi við Flensborgarskólann í Hafnarfirði. Hann vinnur einnig í hlutastarfi hjá blindravinnustofunni og lærir á gítar. Kópavogsbær féllst ekki á að niðurgreiða leigubílaakstur Odds. Hann heldur því fram að með því sé ferðafrelsi sitt skert og það hafi jafnframt áhrif á tekjur sínar.

Páll Rúnar M. Kristjánsson lögmaður segir lög og alþjóðasáttmála alveg skýr að því leyti að tryggja beri fötluðum alla nauðsynlega þjónustu svo þeir standi ófötluðum jafnfætis.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Yaris T-Sport 2007!!!!
Ek. 64 þús. 17'' felgur. Filmur. Xenon. Nýir diskar og klossar. Eins og nýr! Mjö...
Fleetwood Cheyenne árg. 2007, 10 fet.
Markísa, fortjald, grjótvörn, upph., álfelgur, heitt og kalt vatn, íssk., hljómt...
SÖLUSKOÐUN
Söluskoðanir bifreiða. Ertu að kaupa bíl? Láttu fagmenn greina ástand hans áður ...
SPÁNN - Gullna ströndin Costa Brava
Costa Brava - Pladja de Aro er frábær sólarstranda staður. Við leigum út íbúð st...
 
Útboð
Tilkynningar
Grýtubakkahreppur Útbo...
Prentari
Iðnaðarmenn
Prentari óskast Héraðs...
Samkoma
Félagsstarf
Sunnudagur27. maí - hv...
Starfsmaður í mötuneyti
Önnur störf
Starfsmaður í mötuneyti Morgunblaðið ...