Hafa heimsótt 1500 fyrirtæki
Fulltrúar Alþýðusambands Íslands, Samtaka atvinnulífsins og ríkisskattstjóra hafa heimsótt um 1500 fyrirtæki frá um miðjan júní þegar átak hófst gegn svartri atvinnustarfsemi.
Markmiðið með átakinu er að hvetja bæði atvinnurekendur og launafólk til að standa rétt að skattskilum og samningum sín í milli. Athyglinni hefur einkum verið beint að litlum og meðalstórum fyrirtækjum og áhersla lögð á að svört atvinnustarfsemi, undanskot á sköttum og launatengdum gjöldum og brot á kjarasamningum séu skaðleg fyrir alla hlutaðeigandi og samfélagið í heild sinni.
Fulltrúar aðilanna þriggja hafa veitt fyrirtæjum ráðgjöf og fræðslu um viðeigandi reglur og lagaramma ásamt því að hvetja atvinnurekendur og launafólk til að gera nauðsynlegar úrbætur ef þurfa þykir.
Segir ríkisskattstjóri, að megináhersla átaksins felist í að vekja fólk til umhugsunar um neikvæðar afleiðingar hvers konar undanskota og svartrar atvinnustarfsemi fyrir þjóðfélagið í heild. Svört atvinnustarfsemi virðist vera að aukast og sterkasta vopnið til að vinna bug á henni sé fræðsla og almenn viðhorfsbreyting.
Embættið segir, að fyrsta áfanga verkefnisins ljúki í lok ágúst og verði niðurstöður kynntar í lok september eftir að unnið hefur verið úr fyrirliggjandi gögnum. Að jafnaði hafi um 12-14 starfsmenn unnið við verkefnið og sé reiknað með að fjöldi fyrirtækja sem hafa verið heimsótt verði orðin um 2000 í lok mánaðarins.
Þá hafi verið kannað starfssamband hátt í 5000 einstaklinga hjá þessum rekstraraðilum og reiknað sé með að sú tala verði komin vel á sjötta þúsundið í lok ágúst.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 14. júní 2011, Innlent Meira um svarta vinnu
- Miðvikudagur, 3. nóvember 2010, Innlent Vinna gegn svartri atvinnustarfsemi
- Fimmtudagur, 23. september 2010, Innlent Vinna gegn svartri atvinnustarfsemi
- Föstudagur, 5. ágúst 2011, Innlent Hundruð mála í athugun
- Föstudagur, 4. nóvember 2011, Innlent Svört laun langvarandi vandi
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































