Gæti misst af Evrópumótinu í sumar

Vitaliy Mykolenko gæti misst af EM.
Vitaliy Mykolenko gæti misst af EM. AFP/Andy Buchanan

Úkraínski knattspyrnumaðurinn Vitaliy Mykolenko gæti misst af Evrópumótinu 2024 sem fram fer í Þýskalandi í sumar vegna meiðsla.

Bakvörðurinn, sem er 24 ára gamall, er samningsbundinn Everton í ensku úrvalsdeildinni en hann meiddist á ökkla í sigri liðsins gegn Liverpool á dögunum.

Hann missir af öllum líkindum af restinni af tímabilinu með Everton og er nú kapphlaupi við tímann um að verða klár fyrir lokakeppni EM sem hefst hinn 14. júní.

Mykolenko gekk til liðs við Everton í janúar árið 2022 frá Dinamo Kiev en hann á að baki 39 A-landsleiki fyrir Úkraínu þar sem hann hefur skorað eitt mark.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert