Fagna verndun Bitrusvæðisins

Til stóð að reisa Bitruvirkjun á Ölkelduhálsi.
Til stóð að reisa Bitruvirkjun á Ölkelduhálsi.

Bæjarráð Hveragerðis samþykkti í dag ályktun þar sem segir að Hvergerðingar og aðrir fylgjendur skilyrðislausrar verndunar Bitru, Reykjadals og Grænsdals fagni tillögu til þingsályktunar um vernd og nýtingu náttúrusvæða sem geri  ráð fyrir verndun á umræddu svæði. 

„Með því er sérstaða dalanna og svæðisins hér ofan byggðar í Hveragerði viðurkennd en fyrir þessu höfum við barist allt frá því fyrsta hugmynd um Bitruvirkjun kom fram. Órofa samstaða Hvergerðinga hefur án vafa átt stóran þátt í þessari niðurstöðu en við hlið okkar hafa staðið öll samtök sem láta sig náttúruvernd einhverju skipta á landinu.  Slík samstaða er dýrmæt og fyrir það viljum við þakka," segir m.a. í ályktun bæjarráðsins, sem var samþykkt samhljóða. 

Bæjarráðið segir að þótt þetta svæði sé verndað séu nægir virkjunarkostir  í nágrenninu  sem enginn ágreiningur sé um og þar séu efst á blaði  Hverahlíð, Gráuhnjúkar og Meitill.

„Nú er brýnt að orkuöflunarfyrirtæki horfi til þeirra staða þar sem samstaða er um að virkja en haldi ekki áfram að berjast við vindmyllur í vonlausri baráttu um virkjanir á stöðum sem mikill meirihluti þjóðarinnar vill vernda," segir í ályktuninni. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert