Veik staða á Suðurnesjum
Fjárhagsstaða sveitarfélaganna á Suðurnesjum er mjög veik. Hvergi á landinu eru skuldir meiri og öll sveitarfélögin nema eitt voru rekin með tapi í fyrra. Sé litið á skuldir á íbúa eru þrjú af fimm skuldugustu sveitarfélögum landsins á Suðurnesjum.
Á Suðurnesjum eru fimm sveitarfélög, Reykjanesbær, Grindavík, Sandgerði, Garður og Vogar. Garður skuldar sáralítið og staðan hjá Grindavík er sæmileg. Hin sveitarfélögin þrjú eru mjög skuldug. Öll sveitarfélögin á Suðurnesjum nema Reykjanesbær voru rekin með tapi á síðasta ári.
Þrátt fyrir að Garður standi mjög vel nema heildarskuldir sveitarfélaganna á Suðurnesjum (A-hluta) 1.761 þúsund krónum á íbúa. Skuldirnar eru 808 þúsund á íbúa á Vesturlandi, 769 þúsund á íbúa á Vestfjörðum, 619 þúsund á íbúa á Norðurlandi vestra, 776 þúsund á íbúa á Norðurlandi eystra, 1.564 þúsund á íbúa á Austurlandi, 869 þúsund á íbúa á Suðurlandi og 1.021 þúsund á íbúa á höfuðborgarsvæðinu.
Skuldugasta sveitarfélag landsins er Sandgerði, en það skuldar 411% af heildartekjum. Staða sveitarfélagsins hefur versnað mjög mikið milli ára en í árslok 2009 námu skuldirnar 323% af tekjum. Árið 2009 var Álftanes skuldugasta sveitarfélag landsins en það er nú komið í annað sætið með skuldir sem nema 399% af heildartekjum. Þriðja skuldugasta sveitarfélag landsins er Reykjanesbær sem skuldar 395% af heildartekjum sem er svipuð staða og árið á undan. Í fjórða sæti eru Vogar sem skulda 334% af heildartekjum (389% árið 2009). Í fimmta sæti er Fjarðabyggð sem skuldar 275% af heildartekjum (300% árið 2009).
Í nýjum sveitarstjórnarlögum er miðað við að skuldir sveitarfélaga fari ekki upp fyrir 150% af heildartekjum. Samkvæmt skýrslu eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga eru 20 sveitarfélög með skuldir umfram þetta mark þegar litið er til sveitarsjóðs (A-hluta) en 29 ef litið er líka til fyrirtækja í eigu sveitarfélaganna (A- og B- hluta).
Fjögur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu skulda meira en 150% af heildartekjum, en það eru Álftanes (399%), Hafnarfjörður (243%), Kópavogsbær (201%) og Mosfellsbær (183%). Skuldir Reykjavíkur nema 79% af heildartekjum, en þegar tekið er tillit til skulda A- og B-hluta (m.a. Orkuveitunnar og Félagsbústaða) nema skuldir Reykjavíkur 329% af heildartekjum.
Innlent »
- Reglur ræddar í Hafnarfirði
- Rán framið á Akureyri
- WOW air notar Airbus-vélar
- Skoði betur kaflann um forsetann
- Draga hækkun til baka
- Gagnrýnir skamman fyrirvara
- Klára málið í næstu viku
- Segir rangt farið með málsatvik
- Börn og unglingar í óhamingjugildru
- Afgreiðsla ekki í samræmi við lög
- Baðst afsökunar fyrir 12 árum
-
Hundarnir finna dópið strax
- Ummerki um olíu frá Júratímabilinu
- Gerir alvarlegar athugasemdir
- D-vítamínbætt mjólk á markað
- Telja neytendur eiga betri rétt
- Unnur Brá: Eina lausnin?
- Tæplega helmingur ók of hratt
- Umgekkst vændiskonur í opinberum ferðum
- Vatnsleki vegna ræktunar
- „Ég er komin með nóg“
- Allt að 25% verðmunur
- „Pawel virðist eitthvað misskilja ferlið“
- Perlan góður kostur fyrir safn
- Með kannabisgræðlinga í bíl
- Rammaáætlunin tilbúin á næstu dögum
- Efla þarf rannsóknir á höfunum
- Bað hana að leyna bréfunum
- Málið var kært, en fellt niður
- Óvíst um fordæmisgildi
- Farþegum með Norrænu fækkaði
- Undir áhrifum á ótryggðum bíl
- Ólafur Ingi: Fagstétt útrýmt?
- Ný stjórn Röskvu
- Innkalla rjómasprautu
- Geir Jón gefur kost á sér
- Má gera athugasemdir í næsta blaði
- Kærir Snorra til lögreglu
- Hvessir undir Eyjafjöllum
- Jón Baldvin biðst afsökunar á bréfi
- 5,5 laxar í þúsund tonnum makríls
- Stöðvarhúslóð í Bjarnarflagi könnuð
- Brotist inn í Húsaskóla
- Þvottavélin lokaði hurðinni
- Borgarstarfsmenn ósáttari
- Ekkert samráð um frumvarpið
- Ferðamannastraumur til Akureyrar
- Heimsmeistari kvenna í skák keppir hér á landi
- Vindorka könnuð og kortlögð
- Virðingarleysi við vinnu allra
- Vestan stormur við suðurströndina í kvöld
- Forstjóra FME sagt upp störfum
- Stjórnlagaráð
- Umfjöllun í Nýju lífi um bréf Jóns Baldvins Hannibalssonar
- Fjárlagafrumvarp 2011
- Grunnskólakennari fordæmir samkynhneigð
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 2. september 2010, Innlent 12 sveitarfélög fá aðvörun
- Mánudagur, 18. október 2010, Innlent Öll sveitarfélög á Suðurnesjum rekin með tapi
- Mánudagur, 13. febrúar 2012, Innlent Draga úr fjárfestingum
- Fimmtudagur, 29. september 2011, Innlent Skuldir sveitarfélaga lækka
- Föstudagur, 3. september 2010, Innlent Staðan kallar á róttækar aðgerðir
-
Leita enn að líkum um borð
-
Hundarnir finna dópið strax
-
Umferðamiðstöð sprengd í Peshawar
-
Færir Advania forystu?
-
Fangaverðir hjálpuðu föngum að flýja
-
Fundu lík fimm ára stúlku
-
Talinn hafa skotið bekkjarsystur sína
-
Kristrún: Eigum séns á að komast í úrslitakeppnina
Sérfræðistörf
Laus embætti hjá mennta- og menni...




































