Samdrátturinn 8,2%

Fólk mótmælti við setningu Alþingis þann 1. október sl.
Fólk mótmælti við setningu Alþingis þann 1. október sl. mbl.is/Golli

Ráðstöfunartekjur heimilanna eru taldar hafa lækkað árið 2010 um 8,2% frá fyrra ári. Ráðstöfunartekjur á mann drógust saman  um 7,9% milli ára og kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann um 12,6%. Heildartekjur heimilageirans eru taldar hafa dregist saman um 3,6% frá árinu 2009 til 2010 og heildareigna- og tilfærsluútgjöld aukist um 3,4%, samkvæmt frétt Hagstofu Íslands.

Eignatekjur lækkuðu í heild um 55% miðað við verðlag hvors árs sem eru mestu breytingarnar í einstökum liðum ráðstöfunartekna heimilanna milli ára. Eignatekjur eru þær tekjur sem unnt er að ráðstafa án þess að gengið sé á efnahaginn. Er þá átt við efnahag í byrjun viðkomandi tímabils áður en tekið er tillit til breytinga vegna fjármagnstilfærslna eða söluhagnaðar eða -taps (e.capital gain/losses). Þetta er gert samkvæmt skilgreiningunni á tekjuhugtakinu í þjóðhagsreikningum, en hagnaður/tap af þessu tagi á samkvæmt þeim staðli að færast á eignabreytingareikning (verðbreytingareikning) í efnahagsreikningi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert