Réttargeðdeildinni að Sogni lokað
Ákveðið hefur verið að loka réttargeðdeildinni að Sogni 1. mars nk. og flytja starfsemina á Klepp. Þetta segir Páll Matthíasson, framkvæmdastjóri geðsviðs Landspítalans.
Þetta var tilkynnt á fundi með starfsmönnum deildarinnar að Sogni kl. 9 í morgun. Páll segir að störf þeirra, sem eru um það bil 30, verði lögð niður. Hann vonast hins vegar til þess að sem flestir starfsmenn muni sækja um ný störf á nýju deildinni.
Ákvörðunin var nýverið tekin í framkvæmdastjórn Landspítalans.
Páll segir í samtali við mbl.is að þarna slái menn tvær flugur í einu höggi. „Við náum að bæta öryggi og þjónustu við sjúklinga, en á sama tíma náum við nokkurri rekstrarhagræðingu. Þetta er hlutur sem við höfum faglega talið lengi mikilvægan og höfum ákveðið núna að fara í,“ segir Páll.
Hann segir að það sé falskt öryggi í því að hafa deildina á núverandi stað. Sogn sé í raun og veru gamalt barnaheimili. „Starfsfólkið hefur unnið frábært starf við að sinna sínum störfum þarna en húsnæðið er mjög óhentugt,“ segir Páll.
Á Kleppi sé sérhannað húsnæði fyrir geðdeild. Það sé rúmlega 800 fermetrar að stærð á einni hæð en deildin að Sogni sé hins vegar tæpir 600 fermetrar og á þremur hæðum.
„Með þessum flutningi náum við að fjölga strax um tvo til þrjú pláss og höfum alltaf möguleika á því að stækka meira,“ segir Páll, en réttargeðdeildin að Sogni er ætluð fyrir 7 sjúklinga.
Mótmæla ákvörðuninni harðlega
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga mótmæla harðlega ákvörðun forráðamanna Landspítalans að leggja niður réttargeðdeildina á Sogni niður. Segir í yfirlýsingu frá samtökunum að ákvörðunin sé illskiljanleg því ekki hafi verið sýnt fram á hagræði þess að flytja starfsemina á höfuðborgarsvæðið. Sparnaður sé í meira lagi vafasamur auk þess sem að fyrir liggi að leggja þurfi í stofnkostnað til að tryggja deildinni þá umgjörð sem þurfi á nýjum stað.
)Samtökin mótmæla tilflutningi starfa af landsbyggðinni til höfuðborgarsvæðisins sem er í hróplegri mótsögn við yfirlýsta byggðastefnu stjórnvalda. Á réttargeðdeildinni starfa nú um 30 starfsmenn með búsetu i Árborg, Hveragerði , Ölfusi og Flóahreppi og því um verulegt högg að ræða fyrir atvinnulíf þess svæðis,“ segir í yfirlýsingunni.
Bloggað um fréttina
-
Njörður Helgason Bejast, berjast. -
Haraldur Haraldsson Réttargeðdeildinni að Sogni lokað/loksins ein góð frétt úr heilsugeiranum!!!!! -
Guðrún Sæmundsdóttir Viðbót við Litla Hraun.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 2. desember 2011, Innlent Vilja fresta flutningi á Klepp
- Föstudagur, 14. október 2011, Innlent 44 útskrifaðir af 50 á Sogni
- Mánudagur, 28. nóvember 2011, Innlent Tillaga um úttekt á Sogni
- Miðvikudagur, 29. febrúar 2012, Innlent Ný réttargeðdeild á Kleppi
- Föstudagur, 4. mars 2011, Innlent Endurhæfing á Sogni felst ekki í innilokun
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































