Skora á stjórnvöld að sýna aðgát

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra
Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra mbl.is/Ómar Óskarsson

Velferðarvaktin hefur sent stjórnvöldum áskorun um að sýna aðgát við gerð fjárhagsáætlana vegna ársins 2012.

Velferðarvaktin sendi stjórnvöldum samhljóða bréf fyrir ári síðan og leggur á ný áherslu á að þegar ákvörðun er tekin um að draga úr tiltekinni þjónustu vegna efnahagsástandsins verður að gæta að tilteknum atriðum sem fram koma í áskoruninni.

Hlutverk velferðarvaktarinnar er að fylgjast með félagslegum og fjárhagslegum afleiðingum efnahagshrunsins fyrir fjölskyldur og einstaklinga í landinu með markvissum hætti og gera tillögur um aðgerðir í þágu heimilanna. Velferðarvaktin er ráðgefandi fyrir velferðarráðherra og stjórnvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert