Utanríkisráðherra Palestínu til Íslands

Dr. Riad Malki, utanríkisráðherra Palestínu
Dr. Riad Malki, utanríkisráðherra Palestínu Af vef utanríkisráðuneytisins

Dr. Riad Malki, utanríkisráðherra Palestínu, heimsækir Ísland dagana 14. til 16. desember næstkomandi í boði Össurar Skarphéðinssonar, utanríkisráðherra.

Meðan á dvölinni stendur mun ráðherrann eiga fundi með forsætisráðherra og utanríkisráðherra. Þá mun hann heimsækja Alþingi, funda með utanríkismálanefnd og hitta Jón Gnarr borgarstjóra.

Fimmtudaginn 15. desember kl. 14:45 mun ráðherrann halda opinn fyrirlestur á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands í Norræna húsinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert