Engin banaslys á sjó 2011

Slysavarnaskóli sjómanna sem er um borð í skólaskipinu Sæbjörgu.
Slysavarnaskóli sjómanna sem er um borð í skólaskipinu Sæbjörgu.

Á árinu sem leið var þeim merka áfanga náð  í annað sinn í sögunni að ekkert banaslys varð meðal íslenskra sjómanna. Síðast gerðist það árið 2008.

Í fréttatilkynningu frá Landsbjörg segir að ljóst sé að öryggi íslenskra sjómanna hafi aukist til mikilla muna sem og öryggisvitund þeirra, sem hefur tekið miklum stakkaskiptum á síðustu áratugum.

„Má með sanni segja að starf Slysavarnaskóla sjómanna í fræðslu til sjómanna um öryggismál hafi þar en og aftur sannað mikilvægi sitt,“ segir í tilkynningunni.

Þar segir að öllum sjómönnum sé skylt að sækja öryggisfræðslu eigi sjaldnar en á fimm ára fresti og sé árangurinn vel sýnilegur á þessum tímamótum. Metþátttaka hafi verið á námskeiðum við Slysavarnaskóla sjómanna en þá sóttu 3.112 manns námskeið við skólann en fyrra met var 2.300. „Má rekja þessa aukningu til gildistöku öryggisfræðsluskyldu til handa sjómönnum á smábátum,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert