Tilkynnti úrsögn úr félaginu

Verðlaunaafhending Félags kvenna í atvinnurekstri á dögunum. stækka

Verðlaunaafhending Félags kvenna í atvinnurekstri á dögunum. mbl.is/Eggert

mbl.is Ingvar P. Guðbjörnsson - ipg@mbl.is

„Já, það stemmir,“ segir Hulda Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri Félags kvenna í atvinnurekstri, spurð hvort hún geti staðfest úrsögn Dominique Plédel úr félaginu.

Samkvæmt frétt á Smugunni hefur Dominique Plédel, rekstraraðili Vínskólans, sagt sig úr Félagi kvenna í atvinnurekstri í mótmælaskyni.

„Það eru einhverjar óánægðar með þessa umræðu, sem er náttúrlega búin að vera erfið undanfarna daga og er orðin svolítið flókin og mörg sjónarmið uppi,“ segir Hulda spurð hvort hún vilji bregðast við úrsögn Dominique og gagnrýninni undanfarna daga.

Dominique Plédel, eigandi Vínskólans, sagði sig úr Félagi kvenna í atvinnurekstri í kjölfar þess að ...

Dominique Plédel, eigandi Vínskólans, sagði sig úr Félagi kvenna í atvinnurekstri í kjölfar þess að félagið veitti Já viðurkenningu. mbl.is

„Þetta félag þótti bara skara fram úr við að virkja kraft kvenna innan sinna raða. Já rekur 124 manna fyrirtæki og 90% af þeim eru konur. Það má ekki gleymast að þarna er samt stór vinnustaður,“ segir Hulda um þá gagnrýni sem skapast hefur í kjölfar þess að Félag kvenna í atvinnurekstri veitti upplýsingafyrirtækinu Já.is viðurkenninguna Gæfusporið 2012.

Ósátt við að konur vilji haga sér eins og karlar

Haft er eftir Dominique á vefmiðlinum Smugunni: „Þegar farið er að verðlauna tölur úr rekstraryfirliti án þess að skoða siðfræði eða hugmyndafræði – eingöngu vegna þess að þarna eru konur – og kalla það gæfuspor, þá eigum við ekki lengur samleið.“

Þá er einnig haft eftir Dominique: „Málið með ja.is er algjörlega vanhugsað og ég er ekki til í að vera í félagsskap þar sem konur vilja vera eins og karlar og haga sér eins og karlar. Við höfum margt annað fram að færa.“

Dominique segist hafa gengið í samtökin á þeim forsendum að þar væri tengslanet kvenna sem stunduðu fyrirtækjarekstur á forsendum kvenna, en „ekki til að apa eftir körlum“.

Félagskonur fengu bréf í gær

Hulda var spurð hvort margar félagskonur hefðu sagt sig úr félaginu undanfarna. Hún sagði að fjórar konur hefðu tilkynnt úrsögn en á móti hefðu tvær gengið í það.

Þá vísar hún í bréf sem félagskonum var sent í gær, fimmtudag.

Í bréfinu segir m.a. um ástæður veitingar viðurkenningarinnar: „Fyrir réttu ári keyptu Katrín Olga Jóhannesdóttir og Sigríður Margrét Oddsdóttir Já í félagi við Auði Capital, sem er fjáramálastofnun í meirihlutaeigu kvenna. Segja má að þar hafi blað verið brotið í viðskiptasögunni þar sem kvenstjórnendur réðust í kaup á fyrirtæki sem þær unnu hjá (management-buyout). Þegar litið er til lykilsstjórnenda félagsins kemur í ljós að 5 af 6 æðstu stjórnendum félagsins eru konur – og yfirgnæfandi meirihluti starfsfólks félagsins er kvenkyns.  Þetta vóg þyngst í vali stjórnar FKA þegar kom að Gæfusporinu.“

Þá segir að auki: „Án þess að FKA ætli sér að blanda sér í mál er lúta að rekstri Já að öðru leyti finnst okkur rétt að benda á að rétt eins og flest önnur fyrirtæki landsins hefur Já hins vegar orðið að grípa til ýmissa erfiðra aðgerða í hagræðingarskyni. Þar sem meirihluti starfsmanna er konur liggur það einnig í hlutarins eðli að niðurskurðaraðgerðir hljóta að bitna á þeim.

Það er alltaf sársaukafullt þegar rekstrarlegir hagsmunir krefjast þess að fólki sé sagt upp – og gildir þá einu hvort karlar eða konur verða fyrir barðinu á þeim nauðsynlegu aðgerðum. Ákvörðun Já um að leggja niður starfsstöð sína á Akureyri var bláköld rekstrarleg ákvörðun og hafði ekkert með kyn starfsfólks þar að gera.“

Að endingu segir í bréfi til félagskvenna: „Já þykir því hafa skarað fram úr við að virkja kraft kvenna innan sinna raða – og fyrir það fékk félagið Gæfuspor FKA 2012.

Að þessu sögðu munum við nú snúa okkur að því að efla félagið enn frekar með því að bjóða upp á fjölbreytta dagskrá á næstu mánuðum.“

Félagið sameinar og hvetur konur í atvinnurekstri

Félag kvenna í atvinnurekstri hefur í 13 ár staðið að því að veita viðurkenningar til kvenna sem þykja skara fram úr í rekstri sínum.

Hulda upplýsti að um 20 konur hefðu gengið í félagið frá áramótum og í dag væru um 750 konur starfandi í félaginu.

Á heimasíðu félagsins segir að markmið þess séu m.a. að sameina konur í atvinnurekstri. og efla samstöðu þeirra og samstarf. Að stuðla að aukinni miðlun á viðskiptatengdum fróðleik milli félagskvenna, jafnt innlendum sem erlendum. Að hvetja til viðskipta á milli FKA-kvenna. Að auka sýnileika og tækifæri kvenna í viðskiptalífinu, og einnig að stuðla að virðingu og verðskuldaðri athygli samfélagsins á framlagi fyrirtækja sem rekin eru af konum og að hvetja konur til fumkvöðlastarfa.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Frá Þórsmörk. Úr myndasafni.

Par villtist á leiðinni í Þórsmörk

11:23 Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til þess að leita að pari sem hafði verið á göngu yfir Fimmvörðuháls á leiðinni í Þórsmörk en villst af leið. Fólkið fannst síðan tveimur tímum eftir að leit að því hófst. Meira »
Frá Sauðárkróki. Úr myndasafni.

65 brautskráðir á Sauðárkróki

10:42 Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var slitið í 33. sinn í gær við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Samtals brautskráðust 65 nemendur að þessu sinni en 405 nemendur stunduðu nám við skólann á haustönn og 532 á vorönn. Meira »

„Þú ert númer 44 í röðinni“

10:14 Unnið er að viðgerðum á bilun sem varð í morgun á miðlægu netkerfi Símans en truflanir á netsambandi gætu verið til staðar næstu klukkutímana samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Meira »

Bilun í netkerfi Símans

09:29 Truflanir hafa verið í morgun á netsambandi í gegnum netkerfi Símans en svo virðist sem þær hafa byrjað rétt fyrir klukkan níu. Samkvæmt upplýsingum frá Símanum er um miðlæga bilun að ræða í netkerfi fyrirtækisins og er unnið að viðgerð. Meira »

Vissu ekki hver hefði ekið

08:13 Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um bifreið utan vegar á Álftanesi um klukkan hálftvö í nótt. Þegar á staðinn var komið voru þar tveir ölvaðir karlmenn sem reyndust ekki alveg með það á hreinu hvor þeirra hefði verið undir stýri þegar ökuferðin endaði úti í móa. Meira »

Vatn flæddi yfir veginn

10:03 Aurskriða féll við veginn um Eyrarhlíð í Skutulsfirði seinnipart dags í gær samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði. Skriðan fór alveg að veginum en ekki yfir hann og olli því engum skemmdum á honum. Meira »

Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín

Eskifjörður. Hólmatindur er í baksýn.
08:26 Lokun Landsbankans á útibúi bankans á Eskifirði er harðlega mótmælt í ályktun stjórnar Íbúasamtaka Eskifjarðar. Er bent á að útibú Landsbankans hafi verið eina bankastofnunin á Eskifirði og að fyrir vikið hafi Eskfirðingar frekar beint viðskiptum sínum til hans en annarra banka. Meira »

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir forsetaframbjóðandi á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvosjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson söngvari sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Greta Salóme á facebooksíðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
4ra herb.108 m2 íbúð til sölu. verð 22m.
Í Engihjalla í Kópavogi. Laus frá 1. júlí n.k., 3 svefnh. svalir í vestur, áhvíl...
Kawasaki KLE 500
Til sölu Kawasaki árgerð 2007, ekið 6035km. Allt í einum pakka,hjól, jakki, bux...
BAKPOKI SPLUNKUNÝR TIL SÖLU
Mjög góður og öflugur bakpoki til sölu ca 80-115L mörg hólf, fóðraðar ólar, regn...
Slökkvitæki fyrir sumarbústaðinn
Vegna magninnkaupa bjóðum við nokkrar gerðir slökkvitækja á ótrúlegu verði í tak...
 
Til sölu
Til sölu
Viðskiptatækifæri Sey...
Starfsmaður í mötuneyti
Önnur störf
Starfsmaður í mötuneyti Morgunblaðið ...
Hekla atvinna
Sérfræðistörf
HEKLA óskar eftir bifvélavirkjum til sta...
Aðalfundarboð félag skipstjórnarmanna

Félag skipstjórnarmanna Aðalfundarboð...