Auðlindir eign þjóðarinnar

 Íslendingar flytja inn jarðefnaeldsneyti fyrir 44 milljarða króna í gjaldeyri á ári hverju. Í skýrslu sem iðnaðarráðherra kynnti á Alþingi í dag kemur fram að mikilvægt sé að leitað sé leiða til að draga úr olíunotkun hér á landi.

Oddný G. Harðardóttir iðnaðarráðherra lagði í dag fram á Alþingi skýrslu um heildstæða orkustefnu fyrir Ísland en í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá því í maí 2009 er kveðið á um að mótuð verði stefna þar um. Orkustefnunni er ætlað að vera grundvöllur og viðmið ákvarðana er varða orkumál og skulu ákvarðanir stjórnvalda jafnan vera í sem bestu samræmi við stefnuna.

Skýrslan er tillaga stýrihóps sem iðnaðarráðherra skipaði árið 2009 og er um nokkurt nýmæli að ræða að skýrsla sem þessi sé lögð fyrir þingið til umræðu áður en ráðherra gefur út endanlega stefnu, segir í tilkynningu frá iðnaðarráðuneytinu.

Kjarninn í orkustefnunni er „að orkubúskap Íslands verði hagað með sjálfbærum hætti, samfélaginu og almenningi til hagsbóta“. Er hér vísað í hinar þrjár stoðir sjálfbærni, þ.e. verndun umhverfis, samfélagslega sátt og hagræna sjálfbærni til lengri tíma litið.

Í skýrslunni kemur fram að brýnt er að mótuð verði stefna um skattlagningu orkuauðlinda og unninnar orku sem er ein af skilaleiðum arðs til þjóðarinnar. Þjóðin njóti arðs af sameiginlegum orkuauðlindum.

Komið verði á fót sérstökum auðlindasjóði. Sjóðurinn bjóði út nýtingarsamninga til tiltekins hóflegs tíma í senn, t.d. 25-30 ára eða eftir eðli hvers virkjunarkosts að teknu tilliti til upphafsfjárfestingar og afskriftatíma. 

Sjá nánar hér

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert