Dómur yfir Baldri staðfestur
Sigríður Friðjónsdóttir, ríkissaksóknari, Baldur Guðlaugsson og Karl Axelsson í Hæstarétti. mynd/Pressphotos.biz
Hæstiréttur hefur staðfest tveggja ára fangelsisdóm yfir Baldri Guðlaugssyni, fyrrverandi ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu, vegna innherjasvika og brota í opinberu starfi. Einn hæstaréttardómari, Ólafur Börkur Þorvaldsson, skilaði séráliti og vildi láta vísa málinu frá.
Baldur var ákærður fyrir innherjasvik og brot í opinberu starfi þegar hann seldi hlutabréf í Landsbankanum 17. og 18. september 2008. Baldur var þá ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu og sat í samráðshópi íslenskra stjórnvalda um fjármálastöðugleika.
Héraðsdómur Reykjavíkur komst að þeirri niðurstöðu, að Baldur hefði búið yfir innherjaupplýsingum þegar hann seldi hlutabréf sín í Landsbankanum, og hefði því verið innherji í skilningi laga um verðbréfaviðskipti og brotið gegn þeim lögum. Dómur Hæstaréttar hefur ekki verið birtur en dómsorðið var lesið upp kl. 13.30 í dag.
Þá er söluandvirði hlutabréfa í Landsbankanum, sem Baldur seldi, gert upptækt en um var að ræða 192 milljónir króna.
Karl Axelsson, verjandi Baldurs Guðlaugssonar, fór fram á það fyrir Hæstarétti að málinu yrði vísað frá dómi. Sagði hann að engin ný gögn hefðu verið í málinu þegar ákveðið var að hefja rannsókn að nýju, eftir að Fjármálaeftirlitið felldi málið fyrst niður. Því væri um að ræða endurtekna málsmeðferð sem væri í andstöðu við ákvæði mannréttindasáttamála Evrópu.
Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari fór hins vegar fram á það að refsing yfir Baldri yrði þyngd og benti á að refsiramminn leyfði allt að níu ára fangelsi.
Bloggað um fréttina
-
Gísli Foster Hjartarson Næsti gjörðu svo vel!!! -
Guðni Karl Harðarson Er þetta sem koma skal? -
Jón Ingi Cæsarsson Hrópandi sérálit. -
Sigurður Haraldsson Fyrst Baldur er sekur þá er! -
Ingibjörg Magnúsdóttir Baldur má vel við una ... -
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir Misjöfn örlög manna -
Ómar Geirsson Hæstiréttur segir að embættismenn beri ábyrgð. -
Heimir L Fjeldsted Sök bítur sekan -
Sleggjan og Hvellurinn Vonandi merki um það sem koma skal. -
Haraldur Haraldsson Dómur yfir Baldri staðfestur/Ja kemur ekki hrina á eftir allra ...
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 13. mars 2012, Innlent Baldur hefur hafið afplánun
- Miðvikudagur, 2. mars 2011, Innlent Aðalmeðferð í máli Baldurs hafin
- Miðvikudagur, 25. janúar 2012, Innlent Mál Baldurs í Hæstarétti
- Föstudagur, 17. febrúar 2012, Innlent Niðurstaðan mikil vonbrigði
- Miðvikudagur, 2. mars 2011, Innlent Neitar að hafa búið yfir innherjaupplýsingum
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“






































