Kvarta undan sýslumönnum

Sýslumenn framkvæma fjárnám og nauðungarsölur stækka

Sýslumenn framkvæma fjárnám og nauðungarsölur mbl.is/Ómar

Í ljósi nýfallins dóms Hæstaréttar þar sem afturvirkir vaxtaútreikningar áður gengisbundins láns voru dæmdir ólögmætir hafa Hagsmunasamtök heimilanna (HH) sent innanríkisráðherra erindi þar sem ráðherra er hvattur til að beita sér fyrir því að lög um endurupptöku mála verði skýrð.

„Þetta er nauðsynlegt til að tryggt verði að allir þeir sem misst hafa eignir sínar, gert hefur verið árangurslaust fjárnám hjá eða gerðir hafa verið gjaldþrota síðastliðin ár á grundvelli ólögmætra gengistryggðra lána hafi skýlausan rétt til að taka upp sín mál aftur fyrir dómstólum, eða jafnvel að þau verði tekin upp sjálfkrafa.

Nú þegar dómstólar hafa komist að þeirri niðurstöðu að endurútreikningar standist ekki lög er það ljóst að sýslumenn sem framkvæmt hafa fjárnám, nauðungarsölur og gjaldþrotaúrskurði á grundvelli slíkra ólögmætra útreikninga hafa tekið sér dómsvald á meðan réttaróvissa ríkti, og þar með brotið stjórnsýslulög og jafnvel stjórnarskrá. Umrædd framganga sýslumanna er ógn við almannahagsmuni sem kann að baka ríkissjóði ómælda skaðabótaskyldu,“ segir í tilkynningu frá Hagsmunasamtökunum.

Auk þessa vilja samtökin kvarta undan framgöngu sýslumanna í ofangreindum málum þar sem skjöl hafa í mörgum tilvikum borið önnur samningsnúmer en þau sem hvíla á viðkomandi eign eða kröfu.

„Slíkur skáldskapur, sem auk þess er yfirleitt einungis undirritaður af öðrum aðila, þ.e. aðeins lánveitanda en ekki lántaka, getur ekki verið lögmætur grundvöllur fyrir aðför. HH fara fram á það við innanríkisráðherra að hann skipi eftirlitsnefnd sem hafi það hlutverk að fylgjast með framkvæmd fullnustugerða. Hafi sýslumenn látið fullnustugerðir fara fram á grundvelli slíkra samninga eru undirmenn ráðherrans mögulega brotlegir við lög,“ segir ennfremur í tilkynningu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Catalina flugbáturinn sem flaug yfir Reykjavík í dag.

Catalina er í fullu fjöri

17:26 Flugbátar af Catalinagerð voru í notkun hér á landi á árunum 1944 - 1963 og var slík vél fyrsta íslenska flugvélin til að fljúga á milli landa og önnur lék stórt hlutverk í Þorskastríðinu. 68 ára gömul Catalinavél sveif um loftin blá yfir Reykjavík í dag og verður til sýnis á Flugdeginum á morgun. Meira »
Fisvél. Myndin er úr myndasafni og tengist efni fréttarinnar ekki beint.

Fisvél brotlenti við Klaustur

17:04 Fisvél brotlenti við Ásgerði, skammt frá Kirkjubæjarklaustri, um klukkan þrjú í dag. Tveir menn voru í vélinni og sluppu þeir ómeiddir. Meira »

Skjaldborg í skjóli fjalla

Merki Skjaldborgarhátíðarinnar 2012
17:18 „Þetta litar bæjarlífið virkilega skemmtilega,“ segir Alda Davíðsdóttir, Skjaldborgarstjóri í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Um helgina hafa í kringum 300 manns sótt heimildamyndahátíðina Skjaldborg í bænum en þetta er í sjötta sinn sem að hátíðin fer fram. Meira »

Þóra opnar skrifstofu

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi.
16:45 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á annan í hvítasunnu, mánudaginn 28. maí. Miðstöðin verður opin alla daga klukkan 14-20 fram að kosningum. Meira »

Lettneska konan enn ófundin

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
16:14 Leit að lettneskri konu sem sást síðast um miðjan þennan mánuð hefur enn ekki borið árangur. Vitað er að hún tók á leigu sumarhús við Meðalfellsvatn og hefur leitin því enn sem komið er farið fram í nágrenni þess. Meira »

Náttúru, sögu og nytjum gerð skil

Ljósmynd frá Veiðivötnum á sýningunni.
17:00 Ljósmyndasýningin „Í Veiðivötnum“ var opnuð í Heklusetrinu á Leirubakka í gær. Það eru hjónin Sigrún Kristjánsdóttir og Pálmi Bjarnason sem eru höfundar myndanna, og er sýningin afrakstur myndatökuferða þeirra við vötnin undanfarin ár. Meira »

Veðrið leikur við landsmenn

Í Nauthólsvík í dag.
16:38 Veðrið leikur við landsmenn núna um hvítasunnuhelgina og gangi veðurspá eftir verður einmuna veðurblíða og hlýindi næstu daga. Meira »

Við akstur undir áhrifum kannabis

15:55 Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Biskupstungnabraut í Grímsnesi rétt fyrir hádegi í dag við reglubundið eftirlit vegna gruns um að sá æki undir áhrifum. Meira »

Gleymdist að slökkva á eldavélinni

15:49 Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að heimahúsi í Grafarholtinu fyrr í dag en pottur hafði þar gleymst á eldavél og ekki verið slökkt undir honum. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang var enginn heima en nágrannar höfðu látið vita af reykjarlykt og síðan reyk. Meira »

Voru frelsinu fegnar

Kýrnar á Helluvaði voru frelsinu fegnar í gær þegar þeim var sleppt út.
15:19 Það var fjölmenni sem fylgdist með því þegar kúnum á Helluvaði á Rangárvöllum var sleppt út í gær á hátíðinni „Halló Helluvað“ sem hefur verið haldin árlega á bænum um nokkurt skeið. Meira »

Fjölmennasti hópurinn frá upphafi

Frá Akureyri. Úr myndasafni.
15:43 Verkmenntaskólinn á Akureyri brautskráði 191 nemanda með 223 skírteini í gær þegar skólanum var slitið í menningarhúsinu Hofi. Fram kom í ræðu Sigríðar Huldar Jónsdóttur, skólameistara VMA, að um væri að ræða fjölmennasta hóp sem hefði verið útskrifaður frá skólanum en alls hefðu verið brautskráðir 292 nemendur á skólaárinu. Meira »

Margir sóla sig í sundi í dag

Frá sundlauginni í Laugardal í dag.
14:51 Margir nota tækifærið í veðurblíðunni og bregða sér í sund í dag, hvítasunnudag, en sundlaugar eru víða opnar. Um helmingur sundlauganna á höfuðborgarsvæðinu er opinn í dag. Afgreiðslutími þeirra er misjafn, þeim er yfirleitt lokað á bilinu 18-19, en Versalalaug í Kópavogi er opin til klukkan 20. Meira »

„Svona sending er ný reynsla“

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ísland.
14:19 „Ég hef verið sakaður um margt á langri leið en aldrei fyrr um að gera lítið úr konum. Eftir að hafa í áratugi tekið virkan þátt í jafnréttisbaráttunni og átt þar fjölda áhrifaríkra kvenna að samherjum og samstarfsmönnum er svona sending vissulega ný reynsla!“ Meira »

„Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“

Frá Grundarfirði. Úr myndasafni.
12:50 Bæjarráð Grundarfjarðar segir það alvarlegt áfall að Landsbankinn hafi ákveðið að loka útibúi bankans á staðnum í ályktun sem samþykkt var samhljóða. Ákvörðunin sé ekki tekin vegna rekstrar útibúsins á Grundarfirði heldur vegna hagræðingar í heildarrekstri Landsbankans. Meira »

65 brautskráðir á Sauðárkróki

Frá Sauðárkróki. Úr myndasafni.
10:42 Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var slitið í 33. sinn í gær við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Samtals brautskráðust 65 nemendur að þessu sinni en 405 nemendur stunduðu nám við skólann á haustönn og 532 á vorönn. Meira »

„Ég reyni að lifa lífinu til fulls“

Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir.
13:40 Ótrúleg atburðarás réði því að Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir lifði af hjartastopp fyrir rúmu ári. Þá var hún einungis 17 ára. „Röð tilviljana réð því að ég lifði af þennan dag,“ segir hún meðal annars í viðtali í Sunnudagsmogganum. Meira »

Par villtist á leiðinni í Þórsmörk

Frá Þórsmörk. Úr myndasafni.
11:23 Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til þess að leita að pari sem hafði verið á göngu yfir Fimmvörðuháls á leiðinni í Þórsmörk en villst af leið. Fólkið fannst síðan tveimur tímum eftir að leit að því hófst. Meira »

„Þú ert númer 44 í röðinni“

10:14 Unnið er að viðgerðum á bilun sem varð í morgun á miðlægu netkerfi Símans en truflanir á netsambandi gætu verið til staðar næstu klukkutímana samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Nánast nýr Toyota Auris til sölu.
Til sölu Toyota Auris Terra, ekinn aðeins 2 þús.km. og því nánast sem nýr. Nýskr...
NÚ ER RÉTTI TÍMINN FYRIR TRJÁKLIPPINGAR
Nú er rétti tíminn fyrir trjáklippingar og fellingar...
Háfur frá Eirvík.
Elica Stone, til sölu. Upplýsingar í síma 664 1162 eða shanna@pasima.net....
Honda Civic ES 2006
Honda Civic ES árgerð 2006 svartur. Ekinn aðeins 61 þús. sjálfskiptur, topplúga,...
 
Samtök atvinnulífsins
Önnur störf
LÖGFRÆÐINGUR Samtök atvinnulífsins lei...
Deiliskipulag á grundartanga

Deiliskipulag á Grundartanga Austur...
Útboð
Tilkynningar
Grýtubakkahreppur Útbo...
Framkvæmdastjóri
Stjórnunarstörf
Norræni verkefnaútflutningssjóðurinn (No...