Vilja kvartmílubraut á flugvöllinn

Siglufjörður.
Siglufjörður. www.mats.is

Ungmennaráð Fjallabyggðar hefur kannað möguleika á að staðsetja kvartmílubraut á flugvellinum á Siglufirði.

Íþrótta- og tómstundafulltrúi Fjallabyggðar hefur haft samband við Kvartmíluklúbbinn og fékk upplýsingar um hvað þyrfti til að standsetja slíka braut. Fyrirspurn hefur verið send til Isavia um það hvort rekstur flugvallar fyrir sjúkraflutninga og kvartmílubraut fari saman.

Ungmennaráð Fjallabyggðar leggur til að slík braut verði á flugvellinum, svo framarlega sem Isavia gerir ekki athugasemdir.

Frá þessu er greint á vefnum hedinsfjörður.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert