Hneggjandi skemmtilegt gaman

Tignarleg sjón blasti við þeim sem leið áttu um miðbæinn í hádeginu í dag, en þar fór fram skrúðreið 150 knapa og hesta sem lögðu af stað frá Tanngarði og riðu síðan í gegnum miðbæinn og enduðu í Hljómskálagarðinum.

Lögreglumenn í fullum skrúða og knapar í þjóðbúningi settu svip sinn á reiðina, en nú standa yfir Hestadagar í Reykjavík undir yfirskriftinni „Hneggjandi skemmtilegt gaman“.

Í dag verður viðamikil dagskrá í tilefni Hestadaganna og lýkur henni á ístölti í Skautahöllinni í Laugardal.

Ungviðið var ekki skilið útundan, en börnin fengu að bregða sér á bak við Ráðhús Reykjavíkur undir vökulu auga hestamanna.

Dagskrá Hestadaga

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka