Þrettánda hæðin verður 12A

Höfðatorg
Höfðatorg mbl.is/Sigurgeir Sigurðsson

Útibú Samherja í Reykjavík verður flutt á næstunni í Höfðatorg og verður til húsa á hæð sem yfirleitt er þrettánda hæðin en verður 12A. Samkvæmt heimildum mbl.is. vildi Samherji ekki vera á þrettándu hæðinni og verður nafni hæðarinnar því breytt í 12A.

Í dag er útibú Samherja í Reykjavík í Húsi verslunarinnar að Kringlunni 7 en höfuðstöðvar Samherja eru á Akureyri og stendur ekki til að flytja þær þaðan.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert