Össur: Aðild snýst um langtímahagsmuni

Össur Skarphéðinsson.
Össur Skarphéðinsson. Rax / Ragnar Axelsson

Í framsöguræðu sinni við upphaf umræðna um utanríkismál í dag sagði Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, aðild Íslands að Evrópusambandinu snúast um langtímahagsmuni Íslands. Eitt af meginmarkmiðum aðildar væri að koma á efnahagslegum stöðugleika, auka fjárfestingar og skapa störf fyrir Íslendinga framtíðarinnar.

Hann sagði íslenskt efnahagslíf, með öll sín tækifæri, auðlindir til lands og sjávar, vel menntað og kraftmikið fólk, og sterka stöðu á norðurslóðum, enn glíma við innbyggða kerfisgalla sem hefðu um áratugaskeið valdið óstöðugleika og átt sinn þátt í efnahagshruninu haustið 2008. 

Nú vofi yfir Íslandi „snjóhengja“ í formi ríflega þúsund milljarða króna. Utanríkisráðherra sagði eitt mikilvægasta markmiðið vera að ná samstarfi við Evrópu um afnám gjaldeyrishaftanna og að bræða snjóhengjuna án þess að hún breytist í efnahagslegt hamfarahlaup. Örfáum mánuðum eftir aðild mætti koma íslensku krónunni í skjól með þátttöku í ERM II myntsamstarfinu. 

Í umfjöllun um makríldeiluna og málarekstur ESA fyrir EFTA-dómstólnum um Icesave-málið rakti Össur hvernig íslensk stjórnvöld hafa haldið fast á hagsmunum Íslands í þeim málum. Hann sagði bæði mál vera í skýrt skilgreindum farvegi og að kröfur um að slá á frest aðildarviðræðunum við Evrópusambandið vera yfirskot. 

Framsöguræða Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert