70% vilja byssur í lögreglubíla

Tæplega 70% lögreglumanna vilja hafa byssur aðgengilegar í lögreglubifreiðum. Þetta eru niðurstöður könnunar sem gerð var meðal lögreglumanna og birt er í blaði þeirra.

Spurt var hvort lögreglumenn væru sammála þeirri staðhæfingu að skotvopn ættu að vera í læstum hirslum en aðgengileg fyrir lögreglumenn með heimild yfirmanns. 69,9% sögðust vera sammála þessari staðhæfingu, en um 10% sögðust ósammála.

Sjá nánar um skoðanakönnun í blaðinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert