Maður með skammbyssu á skemmtistað

Skammbyssa. Myndin er úr safni.
Skammbyssa. Myndin er úr safni. mbl.is

Karlmaður sem var með skammbyssu á skemmtistað í Kópavogi laust fyrir miðnætti í gær gistir nú fangageymslur lögreglunnar. Dyraverðir afvopnuðu manninn.

Klukkan 23.57 í gær, var tilkynnt að maður með skammbyssu væri inni á skemmtistað í Kópavogi. Dyraverðir afvopnuðu manninn og héldu honum þegar lögregla kom á vettvang.

Maðurinn er nú vistaður í fangageymslu lögreglu og verður yfirheyrður síðar í dag, en hann var undir áhrifum áfengis. Skammbyssan var óhlaðin.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert