Jóhann stjórnarformaður Íbúðalánasjóðs

Jóhann Ársælsson
Jóhann Ársælsson

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hefur skipað Jóhann Ársælsson, fyrrverandi alþingismann Samfylkingarinnar, formann stjórnar Íbúðalánasjóðs í stað Katrínar Ólafsdóttur lektors sem óskað hefur lausnar vegna annarra starfa.

Jafnframt hefur ráðherra skipað Henný Hinz hagfræðing sem aðalmann í stjórnina og Steinunni Valdísi Óskarsdóttur, sérfræðing í innanríkisráðuneytinu, sem varamann hennar.

Stjórn Íbúðalánasjóðs er þar með skipuð eftirtöldum fulltrúum:

Jóhann Ársælsson, fyrrverandi alþingismaður, formaður, Sjöfn Ingólfsdóttir, fyrrverandi formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar, varaformaður, Henný Hinz hagfræðingur, Lárus L. Blöndal hæstaréttarlögmaður og Elín R. Líndal framkvæmdastjóri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert