Hjólreiðafólk veldur usla í umferðinni

Átakið hjólað í vinnuna hófst í gær.
Átakið hjólað í vinnuna hófst í gær. mbl.is/Sigurgeir Sigurðsson

Í gær voru tilkynnt til arekstur.is á annan tug óhappa þar af voru tvö umferðaróhöpp sem urðu vegna umferðar hjólreiðafólk.

Fyrra óhappið varð með þeim hætti að hjólreiðamaður var á ferð á Miklubraut í austur á hægri akrein þar sem leyfilegur hámarkshraði er 80 km/klst. með því að hjóla á akreininni varð þar allhörð aftanákeyrsla. Ökumaður þurfti að nauðhemla til að lenda ekki á hjólreiðamanninum og í kjölfarið náði bifreiðin fyrir aftan ekki að hemla í tæka tíð.

Síðara óhappið varð í Hafnarfirði þar sem hjólreiðamaður hjólaði á þó nokkurri ferð viðstöðulaust yfir gangbraut. Þetta sem varð til þess að næsti bíll þurfti að nauðhemla til að aka ekki á hjólreiðamanninn og fékk við það annan bíl aftan á sig.

Arekstur.is hvetur ökumenn og ekki síður hjólreiðafólk að vanda sig betur í umferðinni og sýna tillitssemi. Hjólreiðafólk sést oft á tíðum ekki vel í umferðinni og á ekki heima á stofnbrautum þar sem hámarkshraði er mikill, segir í tilkynningu.

Hjólað í Reykjavík. Myndin tengist fréttinni ekki beint
Hjólað í Reykjavík. Myndin tengist fréttinni ekki beint
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert