Viðvörunarkerfi almannavarna prófað

Viðvörunarkerfi almannvarna verður prófað í dag með því að senda …
Viðvörunarkerfi almannvarna verður prófað í dag með því að senda sms í farsíma á ákveðnu svæði. Reuters

Í dag, þriðjudaginn 29. maí, klukkan fjögur verður prófað viðvörunarkerfi almannavarna, sem sendir neyðarskilaboð (sms) í farsíma. Með kerfinu er hægt að senda skilaboð í farsíma á fyrirfram ákveðnu svæði til að vara íbúa og ferðamenn við aðsteðjandi hættu. Svæðið sem valið er til prófunar í dag er á þjónustusvæði símafyrirtækjanna í Vík í Mýrdal, en boðin geta borist í farsíma sem eru nokkuð frá Vík. Skilaboðin verða send frá Neyðarlínunni, númerinu 112 og verða á íslensku og ensku og eiga að berast í alla farsíma, erlenda og innlenda á ofangreindu svæði.

Með viðvörunarkerfinu getur Neyðarlínan kallað fram alla farsíma, sem eru innan þjónustusvæðis símafyrirtækjanna á tilteknu svæði og sent þeim neyðarskilaboð.

Að þessu verkefni standa Neyðarlínan, almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, Síminn, Nova, Vodafone og hugbúnaðarfyrirtækið Samsýn.

Margir aðilar hafa lagt sitt af mörkum við þróun og prófanir á kerfinu og einnig veitti Alþingi fjárveitingu til verkefnisins.

Viðvörunarkefið er mikilvægt skref í að auka öryggi íbúa landsins og ferðamanna og verður notað í framtíðinni ásamt öðrum hefðbundnum viðvörunum almannavarna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert