Vaðlaheiðargöng samþykkt

Vaðlaheiðargöng.
Vaðlaheiðargöng. mbl.is

Frumvarp fjármálaráðherra, Oddnýjar G. Harðardóttur, sem veitir ráðherra heimild til að undirrita lánasamning við Vaðlaheiðargöng hf. um lán til gangaframkvæmda fyrir allt að 8,7 milljarða króna, var samþykkt á Alþingi í kvöld.

Alls samþykktu 29 þingmenn fjármögnunina, 13 þingmenn voru á móti henni og fimm sátu hjá.

Þrír stjórnarþingmenn voru meðal þeirra sem sátu hjá: Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, Ólína Þorvarðardóttir og Auður Lilja Erlingsdóttir, varamaður Árna Þórs Sigurðssonar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert