Innbrot og stuldur á Suðurnesjum

Reuters

Tilkynnt var til lögreglunnar á Suðurnesjum um stuld á steypumótum um helgina. Þegar flytja átti mótin milli staða kom í ljós að hluti þeirra var horfinn, svo og klemmur, stoðir og ýmislegt fleira. Þá var tilkynnt um stuld á olíu af vinnutækjum á vinnusvæði við Reykjanesvirkjun. Olíunni var stolið af beltagröfu og tveimur öðrum vinnutækjum þar. Ekki er ljóst um hve mikið magn var að ræða. Málið er í rannsókn.

Brotist var inn í fyrirtæki í Reykjanesbæ í fyrrinótt. Rúða hafði verið brotin á norðurhlið hússins og voru ummerki um að þar hefði verið farið inn. Athugun leiddi í ljós að verðmæt Apple-tölva var horfin, en ekki hafði verið hreyft við öðru innan dyra. Öryggiskerfi í fyrirtækinu hafði farið í gang skömmu eftir miðnætti og var þá hringt eftir aðstoð lögreglu, sem vinnur nú að rannsókn málsins, að því er fram kemur í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert