Vill að ákvæði um kirkjuna verði í stjórnarskrá

Kirkjuhúsið við Laugaveg.
Kirkjuhúsið við Laugaveg. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Kirkjuráð hvetur til þess að við væntanlega þjóðaratkvæðagreiðslu um stjórnarskrá verði þess minnst, og að ný stjórnarskrá lýðveldisins Íslands geymi ákvæði um hina evangelísk lútersku þjóðkirkju eins og verið hefur.

Drög að nýrri stjórnarskrá og ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla voru til umræðu á kirkjuráðsfundi í vikunni. Kirkjuráð samþykkti ályktun þar sem minnt er á hlutverk opinnar og rúmgóðrar þjóðkirkju sem stofnunar í samfélaginu og nauðsyn þess að sátt sé um hana sem aðrar grundvallarstofnanir menningar og samfélags.

Alþingi samþykkti í vor að efna til ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu um nokkra þætti í tillögum stjórnlagaráðs. Eins spurningin sem lögð verður fyrir þjóðina er: „Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði ákvæði um þjóðkirkju á Íslandi?“

Kirkjuráð minnir á að hin evangelísk lúterska þjóðkirkja er einn mikilvægasti grunnþáttur samfélagsins, opin, lýðræðisleg almannahreyfing sem heldur uppi þjónustu og mannræktarstarfi um landið allt, opinber og lögbundin stofnun sem myndar ramma um trúarhefð meirihluta þjóðarinnar, einstaklinga, fjölskyldna og heimila, og heldur utan um mikilvæga arfleifð og minningu og menningu samfélagsins. 

„Í samfélagi þar sem æ fleiri trúarhreyfingar, trúarhættir og trúarhugmyndir hasla sér völl og kalla til áhrifa felst menningarlegur og samfélagslegur styrkur í því að hafa opna og rúmgóða þjóðkirkju sem stendur vörð um grundvallargildi á traustum stoðum sögu og menningar.  Í vaxandi fjölmenningu hefur þjóðkirkjan stuðlað að virðingu og skilningi milli trúarbragða og menningarheima. Þjóðkirkjan er auk þess einn mikilvægasti menningarmiðill í landinu og gegnir lykilhlutverki gagnvart þeim veiku í samfélaginu og sem samstarfsaðili við þau sem vinna að réttlæti og friði í heiminum.

Mikilvægt er að pólitísk og samfélagsleg sátt sé um þjóðkirkjuna sem og aðrar grundvallarstofnanir menningar og samfélags. Kirkjuráð hvetur til þess að við væntanlega þjóðaratkvæðagreiðslu um stjórnarskrá verði þess minnst, og að ný stjórnarskrá lýðveldisins Íslands geymi ákvæði um hina evangelísk lútersku þjóðkirkju eins og verið hefur.“

Í ályktun kirkjuráðs er minnt á ákvði í stjórnarskrá Noregs en í því segir: „Allir þegnar ríkisins skulu njóta frelsis til trúariðkunar. Norska kirkjan, evangelísk-lútersk kirkja er þjóðkirkja og skal sem slík njóta stuðnings ríkisins. Nánar skal það ákvarðað með lögum. Öll trú- og lífsskoðunarfélög skulu njóta stuðnings með ámóta hætti.”

Þetta var síðasti fundur sem Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, stýrir. Agnes M. Sigurðardóttir, verðandi biskup, mun stýra næsta fundi kirkjuráðs.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka