Fjármögnun ganga er enn ekki tryggð

Framkvæmdir við Vaðlaheiðargöng eru hafnar.
Framkvæmdir við Vaðlaheiðargöng eru hafnar. mbl.is/Vegagerðin

Vaðlaheiðargöng hf. hafa enn ekki lokið samningi við fjármálaráðuneytið um ríkisábyrgð vegna ganganna og býst Kristín H. Sigurbjörnsdóttir, stjórnarformaður félagsins, við að því verði lokið um miðjan mánuðinn. Fyrr verði ekki skrifað undir samninga við verktaka.

Í Morgunblaðinu í dag segir Oddný G. Harðardóttir fjármálaráðherra beðið eftir yfirförnum samningi frá Vaðlaheiðargöngum sem verði síðan borinn undir ríkisábyrgðarsjóð.

Oddný kveðst eiga von á að félagið skili fljótlega tryggingum fyrir því að eigið fé þess standist eins og lög gera ráð fyrir.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert