Réðist á mann í heimahúsi á Akranesi

Manni um fertugt voru veittir áverkar í heimahúsi á Akranesi …
Manni um fertugt voru veittir áverkar í heimahúsi á Akranesi um sexleytið í gær. Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Átök urðu á milli tveggja manna í heimahúsi á Akranesi um sexleytið í gær með þeim afleiðingum að annar þeirra var fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar. Að sögn  lögreglumanns hjá lögreglunni á Akranesi voru atvik málsins á þá leið að annar þeirra kom að húsi hins með það að augnamiði að útkljá persónulegar deilur.

Enduðu samskipti mannanna með því að húsráðandi sló til aðkomumannsins og veitti honum töluverða áverka. Árásarmaðurinn var handtekinn og færður í fangageymslur lögreglu. Sá sem ráðist var á hlaut áverka á auga og skurð í andlit og fór til aðhlynningar á sjúkrahúsi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert