Efni tekið úr gervigígum

Gervigígur í Aðaldal í Þingeyjarsveit.
Gervigígur í Aðaldal í Þingeyjarsveit. Ljósmynd/Umhverfisstofnun

Skipulagsfulltrúi Þingeyjarsveitar og Skútustaðahrepps stöðvaði á dögunum efnistöku úr gervigígum í Aðaldal í Þingeyjarsveit, en hvorki hafði verið sótt um né gefið út framkvæmdarleyfi af hálfu sveitarfélagsins. Umhverfisstofnun hefur farið fram á lögreglurannsókn vegna efnistökunnar.

Umhverfisstofnun barst fyrst ábending þess efnis að verið væri að taka efni úr gervigígunum en þeir njóta sérstakrar verndar samkvæmt 37. gr. laga um náttúruvernd og skal forðast röskun þeirra eins og kostur er.

Stofnunin hafði í kjölfar ábendingarinnar samband við skipulagsfulltrúa Þingeyjarsveitar og Skútustaðahrepps til að athuga hvort gefið hefði verið út framkvæmdarleyfi fyrir umræddri framkvæmd. Svo var ekki auk þess sem svæðið er ekki skilgreint sem efnistökusvæði í aðalskipulagi sveitarfélagsins.

Skipulagsfulltrúi stöðvaði umsvifalaust framkvæmdir og í framhaldinu fóru fulltrúar Umhverfisstofnunar á vettvang. „Ekki leyndi sér að þar hafði farið fram nokkuð umfangsmikið malarnám úr gervigígum og var t.a.m. búið að nema á brott stóran hluta gervigígs,“ segir í tilkynningu frá Umhverfisstofnun.

Stofnunin telur að ógerlegt sé að fara út í framkvæmdir til að endurheimta þær jarðmyndanir sem þarna hefur verið valdið tjóni á. En stofnunin telur jafnframt ekki boðlegt að verndaðar jarðmyndanir verði skildar eftir í því ásigkomulagi sem þær eru í dag enda veldur gígurinn sem tekið hefur verið af þó nokkrum neikvæðum sjónrænum áhrifum.

„Umhverfisstofnun hefur því farið fram á það við lögregluembættið á Húsavík að málið verði rannsakað, enda telur stofnunin mögulegt að hér sé um að ræða refsivert brot á lögum um náttúruvernd.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert