Ættleidd börn í tugatali (myndir)

Hér á landi er nú stödd sendinefnd frá kínverskum ættleiðingaryfirvöldum. Af því tilefni var móttaka í sal ráðhúss Reykjavíkur í dag. Þar komu saman um eitthundrað börn sem ættleidd hafa verið frá Kína og vildu heiðra sendinefndina með nærveru sinni.  

 Flest börn sem ættleidd hafa verið eru frá Kína. Fyrir nokkrum dögum kom 165. barnið frá Kína heim til Íslands með fjölskyldu sinni. Börn sem ættleidd eru frá Kína til Íslands eru því stærri hópur en börn frá nokkru öðru landi, segir í tilkynningu frá Íslenskri ættleiðingu.

Lengi vel komu mörg börn árlega frá Indlandi en þau eru núna 164 alls. Í kjölfar breytinga indverskra stjórnvalda á ættleiðingarferlinu, sem enn eru ekki yfirstaðnar, hægði mjög á ættleiðingum þaðan og nú er svo komið að ekkert barn hefur verið ættleitt frá Indlandi til Íslands í tvö ár sem er sama þróun og þekkist á öðrum Norðurlöndum.

 Frá því að ættleiðingar hófust frá Kína fyrir rúmum tíu árum hafa flest börn árlega komið þaðan og það hefur haldist óbreytt þó biðin á almenna biðlistanum hafi lengst þá hefur biðin verið mjög stutt á svokölluðum SN biðlistum og stundum ekki nema örfáir sólarhringar.

 Tvö börn til viðbótar eru nú á leið heim frá Kína eftir nokkrar vikur.

Biðlistinn eftir því að ættleiða barn til Íslands er að styttast verulega um þessar mundir. Fyrir þremur árum voru að jafnaði rúmlega 100 fjölskyldur á biðlista eftir ættleiðingu erlendis frá. Núna er staðan þannig að 46 fjölskyldur eru á hinum eiginlega biðlista og 37 fjölskyldur eru í undirbúningsferli fyrir það að senda umsókn um barn til útlanda.

 Þetta táknar að í biðlista og undirbúningsferli eru samtals 83 fjölskyldur og hefur biðlistinn hjá Íslenskri ættleiðingu því minnkað um 20% á nokkrum misserum.

 Ástæður fyrir þessu eru aðallega af tvennum toga. Meginástæðan er sú að vel hefur gengið með ættleiðingar frá Kína að undanförnu, flestar umsóknir sem berast fara á svokallaðan SN lista og þar er biðin oftast mjög stutt stundum ekki nema nokkrir sólarhringar eftir að umsókn hefur verið metin erlendis.

 Hin meginástæðan er sú að hægt hefur á nýjum umsóknum til ættleiðingarfélagsins vegna þess að undirbúningsnámskeið sem nauðsynleg eru verðandi kjörforeldrum hafa ekki verið haldin á þessu ári, segir í frétt Íslenskrar ættleiðingar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert