Bönnuðu kennsluflug vegna manneklu

Flugumferðarstjórar að störfum. Myndin er úr myndasafni.
Flugumferðarstjórar að störfum. Myndin er úr myndasafni. Brynjar Gauti

Grípa varð til þess ráðs að banna allt flug um Keflavíkurflugvöll nema áætlunarflug í gær vegna forfalla flugumferðarstjóra í flugturninum á vellinum. Þetta þýddi að allt kennsluflug var bannað.

Friðþór Eydal, upplýsingafulltrúi Isavia, segir að forföll hafi verið hjá flugumferðarstjórum. Ekki hafi unnist tími til að finna menn til að hlaupa í skarð þeirra sem forfölluðust. Hann segir að þess vegna hafi orðið að banna tímabundið kennsluflug. Þessi staða sé ekki einsdæmi. Friðþór tók fram að mönnun í turninum hefði ekki verið undir því sem reglur heimila.

Friðþór sagðist ekki vita hversu marga menn hefði vantað á vakt, en samkvæmt heimildum mbl.is voru aðeins þrír flugumferðarstjórar á vakt um tíma.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert