Europris hættir starfsemi á Íslandi

mbl.is/Arnaldur Halldórsson

Norska verslanakeðjan Europris hefur ákveðið að hætta smásöluverslun á Íslandi og verður fjórum verslunum fyrirtækisins hér á landi á Dalvegi í Kópavogi, Fiskislóð í Reykjavík og á Selfossi lokað.

Þetta kemur fram í auglýsingu í Morgunblaðinu í dag en þar segir ennfremur að Europris ætli að kveðja viðskiptavini sína með veglegri rýmingarsölu frá og með deginum í dag.

„Við þökkum afburðagóðu starfsfólki okkar, viðskiptavinum, samstarfsfólki og birgjum ánægjuleg samskipti síðasta áratug,“ segir í auglýsingunni sem undirrituð er af Matthíasi Sigurðssyni, framkvæmdastjóra Europris á Íslandi.

Fyrsta Europris-verslunin á Íslandi var opnuð í júlí 2002 og voru verslanirnar sex talsins hér á landi þegar mest var.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka