Til skoðunar er að fella niður lagaákvæði um hljóðritanir á ríkisstjórnarfundum áður en það á að taka gildi 1. nóvember, enda hafa sérfræðingar fundið ýmsa annmarka á lögunum.
Kveður ákvæðið á um að upptökurnar skuli opinberaðar 30 árum eftir hljóðritun en það átti upphaflega að taka gildi 1. janúar síðastliðinn.
Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag segir Valgerður Bjarnadóttir, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, engar ákvarðanir hafa verið teknar um framhaldið.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins þarf að breyta mörgum lögum til að hljóðritunin geti hafist.