Hefðu tekið yfir þingið

Geir Jón í Valhöll í hádeginu.
Geir Jón í Valhöll í hádeginu. mbl.is/Júlíus

Alþingi hefði verið tekið yfir af mótmælendum ef nokkrir þeirra sem réðust inn í Alþingishúsið þann 8. desember árið 2008 hefðu komist inn í þingsalinn. Þetta er álit Geir Jóns Þórissonar, fv. yfirlögregluþjóns sem segir innrásina í þingið einn alvarlegasta dag mótmæla í kjölfar efnahagshrunsins.

Geir Jón sagði að ýmsir hefðu fundið þessa árás á þinghúsið léttvæga og hún hafi átt að falla undir venjulega mótmæli utanhúss þrátt fyrir að í henni hafi verið ráðist inn í húsið með eignatjóni og lögreglumenn og starfsmenn þingsins slasast.

Í lok fundar var Geir Jón beðinn um að nafngreina þá þingmenn sem hann hefur áður sagt að hafi verið í samskiptum við ákveðna mótmælendur og haft áhrif á hópinn auk þess að hafa hreytt ónotum í lögreglumenn. Það sagðist hann ekki ætla að gera en benti á að það væri hægt að skoða í fundargerð forsætisnefndar þingsins frá 21. janúar árið 2009.

„Öll vitneskjan um það sem gerðist er í Alþingishúsinu. Það var fullt af starfsmönnum þingsins og þingmenn sem heyrðu hvernig ákveðnir þingmenn töluðu við lögreglumenn. Og þeir stjórna landinu enn,“ sagði Geir Jón.

Geir Jón bauð sig fram í embætti annars varaformanns Sjálfstæðisflokksins fyrr á þessu ári.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert