Lögin „tóku ekki rétt af nokkrum manni“

Árni Páll Árnason, lagði lögin fram þegar hann var efnahags- …
Árni Páll Árnason, lagði lögin fram þegar hann var efnahags- og viðskiptaráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Lögin, sem við mig eru kennd, gengu eins langt og hægt var að lesa út úr fyrirliggjandi dómafordæmum Hæstaréttar í árslok 2010, eins og sést nú best á að réttarstaðan er fyrst að skýrast nú nær tveimur árum síðar,“ segir Árni Páll Árnason um dóm hæstaréttar sem féll í máli Borgarbyggðar í gær.

Með dóminum var staðfesti að Arion banka hafi verið óheimilt að breyta vöxtum á gengistryggðu láni afturvirkt, með útreikningum sem gerðir voru samkvæmt lögum sem Árni Páll lagði fram, og gildi samningsvextir á móti fullnaðarkvittunum.

Árni Páll segir á facebook síðu sinni að lögin sem hann lagði á sínum tíma fram hafi ekki tekið rétt af nokkrum manni. „[E]nda skildu allir bankar fordæmi Hæstaréttar á sama veg og Alþingi. Til dómsmála hefði því alltaf þurft að koma til að fá fram þann ítrasta rétt, sem dómstólar eru nú að dæma.“

Ríkið bakaði sér ekki skaðabótaskyldu með setningu laganna að sögn Árna Páls, hins vegar hafi lögin tryggt öllum heimilum sama rétt og sumum heimilum hafði verið dæmdur. „Þannig eru þúsundir heimila nú laus við gengistryggð lán vegna þessara laga, sem þau hefðu ella setið uppi með. Þau tryggðu líka uppgjör innan mjög skamms tíma og leystu úr margvíslegum álitamálum.“

Hann segir erfitt að sjá hvað löggjafinn hefði getað gert öðru vísi. „Löggjafinn hefði hins vegar getað valið að gera ekkert. Þá væru allir gengislánaþegar enn að bíða eftir uppgjörum og margir þeirra - þeir óheppnu - fastir í sínum lánum. Eigandi bíls sem hefði yfirtekið lán myndi njóta endurgreiðslu til fulls, en fyrri eigandi myndi sitja eftir með sárt ennið. Svona mætti lengi telja. Væri það betri staða?“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert