Talsverð hálka í Reykjavík

Hálka er á götum.
Hálka er á götum. Ómar Óskarsson

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Reykjavík er víða komin mikil ísing á götur borgarinnar. Ekki hafa þó ekki borist fregnir af óhöppum. Lögreglan hvetur fólk til að sýna aðgát í umferðinni.

Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar er ekki byrjað að salta götur og hálkublettir eru sérstaklega varhugaverðir í þeim aðstæðum sem nú eru.

Hjá Veðurstofunni fengust þær upplýsingar að þó að hitastig væri yfir frostmarki myndaðist gjarnan hálka á götum þegar veður væri stillt líkt og nú væri.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert