Beiðni Gunnars hafnað í Hæstarétti

Hæstiréttur Íslands
Hæstiréttur Íslands mbl.is/Brynjar Gauti

Hæstiréttur hefur, líkt og héraðsdómur, hafnað beiði lögmanns Gunnars Andersen um að ríkissaksóknaraembættið afli upplýsinga um gögn og viðskipti Landsbankans við Guðlaug Þór Þórðarson.

Í niðurstöðu Hæstaréttar kemur fram að lögmaður Gunnars, Guðjón Ólafur Jónsson, hafi ekki fært viðhlítandi rök fyrir því að þau gögn og upplýsingar, sem hann fer fram á að héraðsdómari leggi fyrir ákæruvaldið að afla, geti haft þýðingu við  málsvörn Gunnars.

Sjá nánar hér

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert