Situr undir svívirðingum „réttsýnna“

Egill Einarsson og Gutti.
Egill Einarsson og Gutti. mbl.is

„Nánast óbærilegt hefur verið að mega reglulega sitja undir grófum svívirðingum, glósum og andstyggilegheitum „réttsýnna“, einkum á netinu,“ segir Egill Einarsson og einnig að líf hans hafi reynst sér og fjölskyldu sinni afar þungbært þrátt fyrir að saksóknari hafi fellt niður nauðgunarkæru.

Egill segir í yfirlýsingu, að hann sé ánægður með að nú liggi fyrir ákvörðun þess efnis að lögreglan muni rannsaka sérstaklega rangar sakagiftir á hendur sér og unnustu sinni. „[Hins vegar] má ekki gleyma því að það er ömurlegt hlutskipti að vera ranglega sakaður um svívirðilegan glæp. Ég efast ekki um hver niðurstaða þeirrar rannsóknar verður og að réttlætið nái fram að ganga. Ég get aðeins vonað að þetta verði til að hreinsa mig endanlega af þessum alvarlegu ásökunum.“

Hann segist lengi hafa verið tvístígandi um hvort hann ætti að fara fram á rannsóknina, en ákvörðunina tók hann eftir að ríkissaksóknari vísaði nauðgunarmálinu frá. „[Þ]að má segja að ég hafi verið til neyddur þegar ljóst var að þeir sem vildu festa mig upp í hæsta tré létu hvergi deigan síga.“

Egill segist treysta því og trúa að þessi lögreglurannsókn verði ekki til að gera þeim konum sem raunverulega lenda í jafn alvarlegum glæp og nauðgun er, erfiðara að ná fram rétti sínum í framtíðinni.

Þá segist hann þurfa að sitja reglulega undir grófum svívirðingum „réttsýnna“. „Í þeim hópi eru meðal annars landskunnir rithöfundar, háskólakennarar, embættismenn og fleiri; ég furða mig á því hversu gáleysislega þeir fara með ásakanir um refsiverða háttsemi.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert