Kalkúnninn vinsæll við þakkargjörð

Þakkargjörðarhátíðin er víða haldin á Íslandi. Þessi mynd er frá …
Þakkargjörðarhátíðin er víða haldin á Íslandi. Þessi mynd er frá þakkargjörðarhlaðborði Fíladelfíukirkjunnar 2011. mbl.is/Golli

Þakkargjörðarhátíðin er á morgun. Þótt þessi stórhátíð sé alamerísk virðist hún höfða til margra og hefur til dæmis skotið rótum sem hefð hjá mörgum Íslendingum. Hvort það er þakklæti fyrir það góða í lífinu sem ræður för skal ósagt látið, en eitt er víst og það er að vinsældir kalkúns fara vaxandi.

„Þetta var nánast ekki til fyrir bara 10 árum, allavega var mjög lítið um það, en þetta hefur aukist og fólk notar þetta sem nýja hátíð,“ segir Jón Magnús Jónsson, bústjóri á Reykjum, þar sem er stærsta kalkúnabú landsins. 

Vinsæll líka um jól og áramót

Vinsældir kalkúns hafa raunar farið vaxandi á öðrum og hefðbundnari hátíðum, s.s. um jól, áramót og jafnvel páska. Jón Magnús segir að hlutasalan hafi sérstaklega aukist, þ.e.a.s. þar sem búið er að búa til alls konar sérrétti úr hlutum fuglsins eins og t.d. fylltar bringur. Heilfuglasalan sé hins vegar nokkuð stöðug, en skjótist upp á þessum tíma árs. 

Þakkargjörðarkalkúnn hefur undanfarna daga verið auglýstur til sölu í verslunum Nettó. Sigrún Elfa Þorleifsdóttir, verslunarstjóri Nettó í Kópavogi, segir að viðtökurnar séu góðar. „Við vorum líka með þetta í fyrra, bæði íslenskan og franskan kalkún, og það gekk mjög vel. Fólk var jafnvel byrjað að spyrja fyrir 1-2 vikum hvenær kalkúnninn kæmi í búðirnar. Þannig að fólk er að kaupa þetta, en ég held að margir séu reyndar að kaupa kalkún fyrir jólin. Til dæmis kom einn í dag og keypti þrjá heila kalkúna til að bjóða stórfjölskyldunni upp á um jólin.“

Taka þakkargjörðina með heim eftir nám

Bandaríski þakkargjörðardagurinn fer fram fjórða fimmtudag í nóvember, sem er einmitt á morgun. Samkvæmt hefðinni vestra hittist stórfjölskyldan og snæðir heilsteiktan, fylltan kalkún og gjarnan graskersböku í eftirrétt. Sígilt meðlæti er líka sætkartöflumús með sykurpúðum og trönuberjasósa. 

Uppruni þakkargjörðarinnar er trúarlegs eðlis og má rekja til enskra pílagríma sem ákváðu að halda guði þakkargjörð eftir fyrsta veturinn í nýrri heimsálfu, árið 1621. Í dag er þakkargjörðarhátíðin þó ekki trúarlegs eðlis í flestra huga heldur fyrst og fremst stund til að verja með fjölskyldu og vinum, borða góðan mat og þakka fyrir það góða sem hefur gerst á árinu. Íslendingar sem búið hafa í Bandaríkjunum, t.d. vegna náms, flytja margir hátíðina með sér heim enda höfðar hún til margra í einfaldleika sínum.

Um liðna helgi var tekið forskot á sæluna og haldin ekta amerísk þakkargjörðarhátíð á Hilton Nordica-hótelinu. Það var félag Fulbright-þega sem stóð fyrir hátíðinni sem var afar vel sótt og að sjálfsögðu var boðið upp á kalkún. 

Fylltur kalkúnn í anda þakkargjörðarhátíðarinnar er mikill herramannsmatur.
Fylltur kalkúnn í anda þakkargjörðarhátíðarinnar er mikill herramannsmatur. mbl.is/Árni Sæberg
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert