Óvissustig vegna Grímsvatnahlaups

Hlaup úr Grímsvötnum. Úr safni.
Hlaup úr Grímsvötnum. Úr safni. mbl.is/RAX

Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórana á Eskifirði og Hvolsvelli, lýsir yfir óvissustigi vegna mælinga sem gefa til kynna aukið vatnsrennsli úr Grímsvötnum. GPS-mælitæki sýnir að íshellan í Grímsvötnum hefur sigið undanfarna daga. 

Búast má við að jökulhlaup komi fram í Gígjukvísl á næstu dögum. Talið er að um minniháttar atburð sé að ræða líkt og var 2008. Engar takmarkanir eru á umferð um Skeiðarársand vegna þessa, að því er segir í tilkynningu frá almannavörnum. 

Að lýsa yfir óvissustigi er hluti af verkferlum í skipulagi almannavarna til að tryggja formleg samskipti og upplýsingagjöf. Óvissustigi er lýst yfir til þess að upplýsa viðeigandi viðbragðsaðila og er ákveðið ferli í skipulagi almannavarna. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert