Þokukenndur dagur í febrúar 2008

Lárus Welding
Lárus Welding Kristinn Ingvarsson

„Ég á óljósar minningar um þennan dag,“ sagði Halldór Halldórsson, viðskiptastjóri á fyrirtækjasviði Glitnis í febrúar 2008, við aðalmeðferð yfir þeim Lárusi Welding, fyrrverandi forstjóra Glitnis, og Guðmundi Hjaltasyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra fyrirtækjasviðs bankans, í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Minnisleysið varð einkennandi eftir hádegið, þegar teknar voru skýrslur af starfsfólki Glitnis en þeir Lárus og Guðmundur voru oftar vissir í sínu sakleysi.

Ástæða þess að Halldór Halldórsson er tekinn út fyrir sviga er sú að augljóst var á dómurum í málinu, en dómurinn er fjölskipaður, að þeir hefðu gjarnan viljað að Halldór gæti rifjað meira upp frá föstudeginum 8. febrúar 2008, þeim örlagaríka degi. „Þessi föstudagur er greinilega í ákveðinni þoku, kannski út af tímalengdinni,“ sagði Símon Sigvaldason dómsformaður þegar hann spurði Halldór spjörunum úr. „Þetta rifjar ekkert upp í þínum huga, símtalið. [...] Þig rekur ekkert minni til hvað þarna er í gangi.“

Ástæðan er sú að Halldór hafði töluvert mikla aðkomu að málinu og er í lykilstöðu til að upplýsa um þátt annarra. Og reyndar má skynja af spurningum verjenda Lárusar og Guðmundar að þeir vilja þátt Halldórs meiri en sérstakur saksóknari. Og kannski er það ekki að ósekju. Halldór var sá eini sem með beinum hætti bendlaði þá Lárus og Guðmund við eitthvað misjafnt við aðalmeðferðina í gær.

Til að rekja það byrjum við á spurningu saksóknara til Halldórs:

„Tókst þú ákvörðun um að lána Milestone?“

„Nei.“

Hverjir tóku þá ákvörðun?

„Líklegast er að það hafi verið yfirmaður minn og forstjóri bankans.“

Þess ber þá að geta að yfirmaður Halldórs var téður Guðmundur Hjaltason.

En málið er flóknara en svo. Óhægt er að rekja það í stuttu máli en það snýst um 102 milljóna evra, um 10 milljarða króna, lán sem áhættunefnd bankans var búin að samþykkja til félagsins Vafnings. Lánið átti að nota til að greiða skuld félagsins Þáttar við bandaríska bankann Morgan Stanley. Veð bandaríska bankans voru hlutabréf í Glitni og Milestone bar ábyrgð á skuldbindingum Þáttar. Og Morgan Stanley gjaldfelldi skuldina og krafðist greiðslu fyrir miðjan dag 8. febrúar, föstudaginn örlagaríka.

Rétt eftir klukkan þrjú umræddan dag barst greiðsla til Morgan Stanley. En Glitnir lánaði ekki Vafningi eins og samþykkt var í áhættunefnd heldur Milestone og ekki var um hefðbundið lán að ræða heldur peningamarkaðslán. Og peningamarkaðslánið var sannarlega ekki afgreitt á hefðbundinn máta.

Lánasamningur við Vafning var tilbúinn og með honum fylgdi svonefnt ádráttarskjal. Á það skjal hripaði hins vegar Halldór Halldórsson niður greiðslufyrirmæli um að greiða ætti Milestone peningamarkaðslán. Og hann staðfesti skrift sína. Og hann staðfesti rödd sína í símtali þar sem hann spurði miðlara hvort þetta væri gerlegt og að hann kæmi skjölum til hans.

Undir þetta skjal skrifuðu bæði Lárus og Guðmundur.

Neituðu að hafa séð skjalið

Ef við drepum aðeins niður í skýrslutökurnar að nýju. Saksóknari spyr og Halldór svarar:

„Varst þú viðstaddur þegar ákærðu skrifuðu undir skjalið?“

„Ég man það ekki.“

Getur verið að þú hafir tekið það upp hjá sjálfum þér að breyta efni skjalsins eftir að þeir skrifuðu undir eða höfðu vitneskju um það?“

„Nei.“

Báðir Lárus og Guðmundur neituðu að hafa séð umrætt skjal fyrr en hjá sérstökum saksóknara. Þeir könnuðust við undirskrift sína en útilokuðu ekki að því hefði verið breytt eftir að þeir skrifuðu undir.

Glitnir
Glitnir AFP
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert