Ný hótelkeðja úr vinnubúðum

Stracta keypti 30 þúsund fermetra einingahús í Reyðarfirði.
Stracta keypti 30 þúsund fermetra einingahús í Reyðarfirði. mbl.is/Sigurður Aðalsteinsson

Vinnubúðir frá Fjarðaáli í Reyðarfirði verða notaðar til að byggja upp 80-100 manna hótel á 8-10 stöðum á landinu, ef hentugar lóðir fást.

Stjórnendur Stracta Construction sem er eigandi vinnubúðanna hafa rætt hugmyndina við sveitarstjórnarmenn á Suðurlandi, Húsavík og víðar. Sveitarstjórn Mýrdalshrepps samþykkti að ræða við fyrirtækið um hugsanlega lóð í Vík.

Hreiðar Hermannsson framkvæmdastjóri stefnir að því að koma upp þremur hótelum á næsta ári og hinum á árinu 2014. Opið verður allt árið. Hótelin verða rekin sem ein heild.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert