Tíu fengu fálkaorðuna

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sæmdi tíu Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag.

1. Eggert Pétursson myndlistarmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir

framlag til íslenskrar myndlistar

2. Eva Sigurbjörnsdóttir hótelstjóri, Djúpuvík, riddarakross fyrir

uppbyggingu ferðaþjónustu í dreifðum byggðum

3. Helga Birna Gunnarsdóttir þroskaþjálfi, Hafnarfirði,

riddarakross fyrir störf í þágu fatlaðs fólks, menntunar og

félagsmála þroskaþjálfa

4. Inga Dóra Sigfúsdóttir prófessor, Reykjavík, riddarakross fyrir

frumkvæði og rannsóknir á sviði forvarna

5. Ingibjörg Einarsdóttir skrifstofustjóri, Reykjavík, riddarakross

fyrir framlag til eflingar lestrarhæfni grunnskólanema

6. Kristín Guðmundsdóttir íþróttakennari, Reykjavík, riddarakross

fyrir framlag til þjálfunar fatlaðra íþróttamanna

7. Kristján Eyjólfsson læknir, Reykjavík, riddarakross fyrir

frumkvæði á sviði hjartalækninga og framlag til

heilbrigðisvísinda

8. Magnús Geir Þórðarson leikhússtjóri, Reykjavík, riddarakross

fyrir störf í þágu íslenskrar leiklistar

9. Sveinn Elías Jónsson bóndi og byggingameistari, Kálfsskinni,

riddarakross fyrir störf í þágu atvinnulífs og félagsmála í

heimabyggð

10. Þórir Baldursson tónlistarmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir

framlag til íslenskrar tónlistar

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert