Gáfu Tindastóli Mercedes-Benz-rútu

Jón E. Friðriksson framkvæmdastjóri FISK Seafood sem afhenti Tindastóli bílinn.
Jón E. Friðriksson framkvæmdastjóri FISK Seafood sem afhenti Tindastóli bílinn.

Í gær afhenti FISK Seafood á Sauðárkróki Tindastóli fólksflutningabifreið af gerðinni Mercedes-Benz Sprinter 519 CDI að gjöf. Bifreiðin er ný og beint úr kassanum. Hún tekur 17 farþega og er gott bil á milli sætanna og eins er mjög mikið pláss fyrir töskur og farangur. Í bifreiðinni er einnig afþreyingarkerfi sem inniheldur m.a. dvd-skjá og spilara.

Þetta kemur fram í frétt á vef Tindastóls.

Jón E. Friðriksson, framkvæmdastjóri FISK Seafood, afhenti Tindastóli bílinn og lagði áherslu á öryggi barna og unglinga á ferðum þeirra fyrir Tindastól. Hann sagðist gera sér grein fyrir miklum ferðakostnaði í íþróttum og vonaði að þessi gjöf kæmi sér vel fyrir iðkendur og fjölskyldur sem væru með börn og unglinga í skipulögðu íþróttastarfi. Einnig sagði hann að gjöfin væri viðurkenning og um leið hvatning  fyrir gott starf hjá félaginu.

FISK Seafood hefur verið  öflugur stuðningsaðili knattspyrnudeildar Tindastóls í gegnum tíðina og er m.a. aðalstyrktaraðili Króksmóts FISK sem haldið er á Sauðárkróki ár hvert.

Rútan.
Rútan.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert