Annar barnaníðingur handtekinn

Maðurinn var meðal annars með barnaklám í fórum sínum.
Maðurinn var meðal annars með barnaklám í fórum sínum. Kristinn Ingvarsson

Lögreglan á Selfossi handtók í dag dæmdan barnaníðing vegna gruns um kynferðisbrot á Suðurlandi. Þetta kom fram í Kastljósi Ríkisútvarpsins í kvöld en áfram var fjallað um barnaníð, eins og undanfarna þrjá daga.

Maðurinn afplánaði dóm fyrir rúmum áratug en skipti um nafn eftir afplánunina. Hann var dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir brot gegn sex ungum stúlkum og vörslu barnakláms.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert