Bregðast verður við strax

Vonskuveður gekk yfir Vestfirði á milli jóla og nýárs og …
Vonskuveður gekk yfir Vestfirði á milli jóla og nýárs og var rafmagnslaust um tíma. mbl.is/Halldór Sveinbjörnsson

Sýslumaðurinn á Ísafirði og Patreksfirði segir að ástand raforkumála á Vestfjörðum er slíkt að ekki verður lengur við unað. Hann hefur af þessu miklar áhyggjur og telur að stjórnvöld verði þegar í stað að bregðast við. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Úlfari Lúðvíkssyni sem bæði er sýslumaður sem og lögreglustjóri á Vestfjörðum.

„Stjórn aðgerða í héraði, þegar almannavarnaástand ríkir, er í höndum lögreglustjóra í viðkomandi lögregluumdæmi.  Þegar verst lét um síðustu áramót var stutt í það að öll fjarskipti við Vestfirði rofnuðu vegna rafmagnsleysis. Við slíkar aðstæður eru mönnum allar bjargir bannaðar og lífi og heilsu almennings, umhverfi og eignum ógnað.   Dísilrafstöðvar sem sjá eiga íbúum og fyrirtækjum fyrir varaafli biluðu þegar á reyndi.   

Lögreglustöðin á Ísafirði getur ekki treyst á varaafl frá þessum stöðvum. Ekki slökkvistöðin, ekki símstöðin. Sjúkrahús og Vegagerð búa við eigið varaafl, ekki að ástæðulausu.

Ástand raforkumála á Vestfjörðum er slíkt að ekki verður lengur við unað. Sveitarstjórnir, almenningur og þingheimur hljóta að vera sammála um að ástandið sé ómögulegt. Lögreglustjóri hefur af þessu miklar áhyggjur og telur að stjórnvöld verði þegar í stað að bregðast við. 

Tryggt þarf að vera að helstu stofnanir samfélagsins njóti rafmagns og að öruggt varaafl sé til staðar. Umræðan ein og sér dugir ekki, vandamálið er áratuga gamalt og þekkt. Ekki á að linna látum fyrr en bætt hefur verið úr. 

Rannsóknarnefnd almannavarna sem starfar sjálfstætt og óháð stjórnvöldum á hiklaust að taka til starfa að loknu þessu hættuástandi og fara yfir málið. Stjórnvöld þurfa að rétta Orkubúi Vestfjarða hf. og Landsneti hf. hjálparhönd. Látum  verkin tala,“ segir í yfirlýsingu Úlfars.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert