Styrktarfélagið Líf fékk þrjár milljónir frá ríkisstjórninni

Suðurpólfarinn Vilborg Arna Gissurardóttir við athöfnina í dag. Þar var …
Suðurpólfarinn Vilborg Arna Gissurardóttir við athöfnina í dag. Þar var hægt að sjá búnað hennar og heilsa upp á Vilborgu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra afhenti í dag Lífi, styrktarfélagi Kvennadeildar Landspítalans, þriggja milljóna króna styrk fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.
Styrkurinn var afhentur við sérstaka athöfn í Hörpu í dag, sunnudaginn 3. febrúar, í tilefni af afreki Vilborgar Örnu Gissurardóttur, sem gekk á suðurskautið til styrktar Lífi styrktarfélagi.

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra ávarpaði Vilborgu við þetta tækifæri og sagði þjóðina hafa fylgst með langri ferð hennar, ekki síst lokasprettinum.

„Ferð þín var merkileg ekki síst vegna þess að þú ert í senn fyrsti Íslendingurinn sem gengur einn síns liðs á suðurpólinn og  fyrsta íslenska konan sem nær þessum áfanga. Þar að auki lagðir þú upp í þennan leiðangur með það að markmiði að styrkja aðra og styðja,“ sagði forsætisráðherra.

Mikilvæg fyrirmynd

Hún sagði jafnframt að margir mættu taka sér langan og markvissan undirbúning Vilborgar sér til fyrirmyndar. „Þú hefur sýnt konum hvers þær eru megnugar og að þeim eru svo sannarlega allir vegir færir og ert þú því ekki síst mikilvæg fyrirmynd að því leyti,“ sagði Jóhanna ennfremur.

Líf styrktarfélag styrkir Kvennadeild Landspítalans, bæði aðbúnað og þjónustu við konur og fjölskyldur þeirra á meðgöngu, í fæðingu og sængurlegu sem og kvenna sem þurfa umönnun vegna kvensjúkdóma.

Félagið vinnur einnig að líknar- og mannúðarmálum í þágu fjölskyldna.

Styrkveitingin var samþykkt á ríkisstjórnarfundi 1. febrúar síðastliðinn, en hann er veittur af ráðstöfunarfé ríkisstjórnarinnar.

Áður höfðu safnast rúmar 17 milljónir króna. Enn má leggja söfnuninni lið með því að hringja í símanúmerið 908 1515 og dragast þá 1500 kr. af símreikningi eða með frjálsum framlögum á vefsíðu Lífs. Einnig er hægt að millifæra inn á reikning Lífs styrktafélags, reikningsnúmerið er: 515 14 411000, kt. 501209 1040.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert