Frumvarp um staðgöngumæðrun ekki lagt fram

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra sést hér á Alþingi ásamt Katrínu Júlíusdóttur fjármálaráðherra. stækka

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra sést hér á Alþingi ásamt Katrínu Júlíusdóttur fjármálaráðherra. mbl.is/Kristinn

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra sér ekki fram á að frumvarp um staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni verði lagt fram á Alþingi fyrir þinglok þann 15. mars.

„Þetta hefur tekið mun lengri tíma heldur en við reiknuðum með og ég sé ekki fram á það að það verði lagt fram frumvarp núna á þessum dögum sem eftir eru á þessu þingi. En bind þá vonir við að það komi þá inn á netið hjá velferðarráðuneytinu ef að við náum því fyrir kosningar, sem að ég er heldur ekki viss um,“ sagði Guðbjartur þegar hann svaraði fyrirspurn Ragnheiðar E. Árnadóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins.

„Ég treysti á að þessari vinnu verði haldið áfram í samræmi við þá samþykkt sem Alþingi gerði og reynt að ljúka þessu máli. Ég tel að þarna þurfi að vanda mjög vel til verka. Við höfum óskað eftir því á allan hátt. Það var leitað til sérfræðinga í sambandi við þessa vinnu en það hefur engin fyrirstaða verið eða tafir sem hafa átt að verða á þessu máli, þó að ég hafi ekki sérstaklega verið að reka á eftir því þessa síðustu daga,“ sagði Guðbjartur í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag.

Ragnheiður segir að allir séu sammála um það að menn verði að vanda til verka. Hún bendir á að það þurfi jafnframt að eiga sér umræða um staðgöngumæðrun í samfélaginu.

Hún hvatti Guðbjart til að beita sér fyrir því að frumvarpið komi fram „einmitt til þess að umræðan geti farið fram. Hún fer ekki fram í þjóðfélaginu á meðan starfshópurinn [sem undirbýr frumvarp til laga sem heimili staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni] er lokaður inni í ráðuneytinu.“

Guðbjartur segist hafa stutt Ragnheiði í því að málið nái fram að ganga. Hann segist hafa ýtt á eftir verkefninu, þrátt fyrir að það hafi verið skoðanir hafi verið skiptar um það með hvaða hætti menn hafi átt að taka á málinu.

„Það er ekkert annað hægt en að harma það að þetta hefur tekið tíma,“ sagði Guðbjartur og bætti við að hann hefði fyrir skemmstu gengið á eftir því að hópurinn skilaði sinni vinnu sem allra fyrst.

„Ég er tek undir með háttvirtum þingmanni að við þurfum einmitt að koma þessu út í umræðuna aftur áður en það fer svo í endanlega afgreiðslu inni í þinginu,“ sagði Guðbjartur.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Bótaskylt vegna Inspired by Iceland

15:10 Íslenska ríkið var í dag dæmt til að greiða auglýsingastofunni J&L ehf. rúmar fimm milljónir í skaðabætur vegna þátttöku auglýsingastofunnar í Inspired by Iceland-verkefninu. Meira »

Tölvuþrjótar herja á viðskiptavini Íslandsbanka

14:07 Nokkrir viðskiptavinir Íslandsbanka hafa í morgun fengið póst þar sem þeir eru beðnir um að staðfesta notendaupplýsingar með því að tengjast netbanka í gegnum þá vefslóð sem gefin er upp í póstinum. Efni póstsins (subject) er: „Staðfesting... reiknings Alerts“. Meira »

Sýknaðir af nauðgun í Hæstarétti

13:57 Hæstiréttur sýknaði í dag tvo karlmenn sem Héraðsdómur Reykjavíkur sakfelldi fyrir nauðgun í ársbyrjun. Niðurstaða héraðsdóms er gagnrýnd og segir í dómi Hæstaréttar að ákæruvaldinu hafi mistekist að sanna sekt mannanna. Fimm dómarar Hæstaréttar dæmdu í málinu en einn þeirra skilaði sératkvæði. Meira »

Rannsóknarnefnd skoðar vél Ómars

Flugvél Ómars flatmagar við Sultartangalón
13:54 „Þegar ég kom að þessu með myndavél þá var þyrlan búin að krækja í vélina,“ segir Aron Steinn Guðmundsson, starfsmaður Ístaks við Búðarhálsvirkjun, en hann tók myndir af því í dag þegar þyrla Landhelgisgæslunnar flutti flugvél Ómars Ragnarssonar, sem brotlenti við Sultartangalón á þjóðhátíðardag. Meira »

Kæra til Mannréttindadómstólsins

Svavar Halldórsson.
13:45 Svavar Halldórsson og Ríkisútvarpið hafa sameiginlega ákveðið að una ekki dómi Hæstaréttar í máli Jóns Ásgeirs Jóhannessonar gegn Svavari, sem féll í nóvember. Niðurstaða Hæstaréttar hefur því verið kærð til Mannréttindadómstóls Evrópu. Meira »

Ódýrara að nota farsímann innan Evrópu

13:12 1. júlí lækkar verð á notkun farsíma/netlykla milli landa innan Evrópu samkvæmt reglugerð ESB um verðþök á notkun farsíma og netlykla innan sambandsins. Meira »

200 taka þátt í WOW Cyclothon-keppninni

Frá WOW Cyclothon árið 2012.
13:52 Um 200 manns eru skráðir til leiks í WOW Cyclothon hjólreiðakeppnin sem hefst í dag kl. 18. Samtals verða hjólaðir 1.332 kílómetrar á innan við 72 klukkustundum. Meira »

Sáttaumræður í fjárlaganefnd

Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar.
13:19 „Þörf var á formlegri sáttaumræðu milli fjárlaganefndar og Ríkisendurskoðunar eftir síðasta þing,“ sagði Vigdís Hauksdóttur, formaður fjárlaganefndar í samtali við mbl.is í dag, en fundur fór fram í nefndinni í morgun þar sem samskipti nefndarinnar við Ríkisendurskoðun á síðasta þingi voru ofarlega á baugi. Meira »

Voldugar Sækýr synda Ermarsund

Sækýrnar. Kristín Helgadóttir, Sigrún Þuríður Geirsdótir, Birna Hrönn Sigurjónsdóttir, Ragnheiður Valgarðsdóttir, Anna Guðrún Jónsdóttir og ...
12:53 „Sjórinn hefur verið að kalla meira og meira á okkur og finnum við sífellt stærri verkefni,“ segir Ragnheiður Valgarðsdóttir, sundskona úr hópnum Sækýrnar. Hópurinn hyggst þreyta boðsund yfir Ermarsundið. Nái hópurinn markmiði sínu verða þær fyrsti íslenski kvennaboðsundshópurinn sem lýkur áfanganum Meira »

Virkt hraðaeftirlit fækkar slysum

12:45 165 ökumenn hafa verið stöðvaðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Hvolsvelli það sem af er júnímánuði, að sögn Guðmundar Inga Ingasonar varðstjóra. Erlendur ferðamaður á Mýrdalssandi mældist í gær á hraðanum 159 km/klst. og var hann sviptur ökuréttindum í tvo mánuði og gert að greiða 140 þúsund í sekt. Meira »

Síbrotamaður dæmdur í níu mánaða fangelsi

Maðurinn hefur sautján sinnum verið dæmdur fyrir brot gegn almennum hegningarlögum, umferðarlögum og lögum um ...
12:27 Karlmaður á fertugsaldri var í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdur í níu mánaða fangelsi fyrir að hafa stolið matvöru, fatnaði og snyrtivörum á nokkurra mánaða tímabili í vetur. Maðurinn hefur hlotið 17 dóma frá árinu 1998 er hann var tvítugur. Meira »

Handtekinn með hafnaboltakylfu

Héraðsdómur Reykjavíkur. Úr myndasafni.
12:10 Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir að hafa á árunum 2012 og 2013 ekið ítrekað ekið undir áhrifum fíkniefna. Málið var dómtekið í Héraðsdómi Reykjavíkur en maðurinn hefur ítrekað komið sögu lögreglunnar. Meira »

„Ég kem með baseballkylfu í bankann“

Héraðsdómur Vestfjarða
11:49 „[...] þú getur sagt... skilað til þeirra... Ég kem með baseballkylfu í bankann og brýt eitthvað og bramla núna mjög fljótlega ef það verður ekki löguð heimildin innan tveggja mínútna. [...]“ Þetta kemur fram í ákæru yfir manni sem hótaði starfsfólki Arion banka í Borgarnesi fyrir tveimur árum. Meira »

Ólafur Ragnar heimsækir Þýskaland

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, á Bessastöðum.
11:36 Forseti Íslands fer í næstu viku í opinbera heimsókn til Þýskalands í boði Joachim Gauck, forseta Þýskalands. Auk forseta og forsetafrúar verða utanríkisráðherra, embættismenn utanríkisráðuneytisins og forsetaskrifstofu og fulltrúar vísinda, tækni, atvinnulífs og menningar með í för. Meira »

Lögreglan leitar manns

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi myndum vegna máls ...
11:02 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi myndum vegna máls sem hún hefur til rannsóknar. Meira »

Seldi ritalín fyrir milljónir

Maðurinn seldi ritalín og fleiri lyfseðilsskyld lyf án heimildar.
11:39 Karlmaður um fimmtugt var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir ólöglega lyfjasölu og peningaþvætti. Maðurinn hefur hlotið 20 refsidóma frá árinu 1980. Meira »

100 milljónir í eldfjallarannsóknir

Eldgos
11:06 Vísindasamfélagið, orkufyrirtæki og Orkustofnun hafa gert með sér samkomulag um að verja um 100 milljónum króna til rannsókna á samspili vatns og kviku í rótum eldfjalla. Meira »

„Klassískt íslenskt sumarveður“

Veðurstofan spáir hæglætisveðri um helgina. Búast má við skúrum í flestum landshlutum.
10:57 „Þetta er mjög klassískt íslenskt sumarveður. Hægur vindur og það skiptast á skin og skúrir,“ segir Elín Björk Jónasdóttir, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, spurð út í helgarveðrið. Hægar norðlægar áttir verða ríkjandi og má búast við skúrum víðast hvar. Hiti verður á bilinu 10 til 15 stig. Meira »
BRJÓSTAHALDARAR
Sundbolir - Tankini - Bikini - Náttföt - Undirföt - Sloppar - Inniskór - Undirk...
VW PASSAT 2006 STATION - TILBOÐ
Frábær fjölskyldubíll til sölu, ek 97þ, beinskiptur, nýlega ástandsskoðaður. Smu...
Til sölu fellihýsi
Til sölu fellihýsi med fortjaldi sólarselu gasmidstöd og 220voltarafm vel med fa...
Pels
Til sölu Pels nr. 38 Frekari upplýsingar í síma: 8935005...
 
Verkfræðingur / sérfræðingur f rafkerfi flugvéla
Sérfræðistörf
ÍSLENSK A SIA.IS ICE 64677 6/13 kOm...
Menntaskólinn á akureyri - skólaslit

Menntaskólanum á Akureyri verður...
Aðstoðarskólastjóri
Grunn-/framhaldsskóla
Vantar aðstoðar- skólastjóra í Grunn...
Tæknimenn - noregur
Sérfræðistörf
TÆKNIMENN - NOREGUR ÍSTAK óskar eftir a...